Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
156 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 21. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Kambsvegur 30, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 21. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] kynnir: Hlýleg 156 fm, 4ra herbergja sérhæð með bílskúr í tveggja íbúða húsi við Kambsveg 30 í 104 Reykjavík.  
Íbúðin sjálf er 124,2 fm sem samanstanda af sérinngangi, forstofu, eldhúsi/borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, gestasnyrtingu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Sérinngangur og útgengi beint út í sameiginlegan garð úr stofunni. Bílskúrinn er 31,8 fm.
Forstofa: Gengið inn um sérinngang í flísalagða forstofu. 
Eldhús / borðstofa: Rúmgott rými með hvítri innréttingu. Parket á gólfi. Tengi er í eldhúsi fyrir tvöfaldan ísskáp. 
Stofa: Björt með parket á gólfi og útgengt út á svalir/garð. 
Herbergisgangur: Nýlegir fataskápar og parket á gólfi.
Hjónaherbergi:  Nýlegur fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað að mestu 2025 og skipt um vatns- og ofnalagnir. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Gluggi er á baðherbergi með opnalegu fagi.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með innréttingu og snúrum. 
Geymsla: Er inn af þvottahúsi. Í geymslu eru hitamælar fyrir báðar íbúðirnar í húsinu.
Bílskúr: Með hita og rafmagni, var áður stúdíóíbúð, en er nýttur í dag sem geymsla.

Skipt var um glugga í öllu húsinu 2023-2024.
Hús og bílskúr endurmúrað og málað 2023-2024.
Lagnir fóðraðar í húsi og skipt um neyslulagnir árið 2025.
Ofnar fjarlægðir og hiti settur í gólf í öllu húsinu árið 2025.
Allar innihurðir pússaðar og málaðar árið 2025.
Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu. 
Þak endurnýjað árið 2012 að sögn fyrri eiganda.
Eldhús og þvottahús endurnýjað árið 2008 af fyrri eigendum

Íbúðin er vel staðsett í þessu friðsæla hverfi og í göngufæri við skóla, leikskóla, íþróttir, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson, s. 775-1515 - [email protected] - löggiltur fasteignasali


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. okt. 2019
58.150.000 kr.
64.600.000 kr.
156 m²
414.103 kr.
10. okt. 2011
27.200.000 kr.
34.500.000 kr.
156 m²
221.154 kr.
15. sep. 2006
27.820.000 kr.
30.000.000 kr.
156 m²
192.308 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík