Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Vista
fjölbýlishús

Þangbakki 10

109 Reykjavík

57.500.000 kr.

806.452 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2046958

Fasteignamat

51.350.000 kr.

Brunabótamat

38.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
71,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 24. október 2026 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Þangbakki 10, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 04. Eignin verður sýnd laugardaginn 24. október 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagða og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð sem telur 71,3 fm á 5. hæð í lyftuhúsi við Þangbakka 10 með frábæru útsýni.
Þangbakki 10, íbúð merkt 0504 og 5D er skráð 71,3 fm. Íbúðin er í lyftuhúsi með frábæru útsýni til norð-vesturs yfir Esjuna, sundin og borgina.

Allar nánari upplýsingar veitir Magnús Þórir Matthíasson í síma 895-1427 eða [email protected]

*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit ***

Samkvæmt Þjóðskrá Ísland telur eignin 71,3 fm og þar af er sér geymsla íbúðar 7,2 fm.
Fasteignamat 2027 er 52.800.000 kr.


Nánari lýsing eignar:
Sameiginlegur inngangur er á suðurhlið hússins. Andyrrið er rúmgott með nýlegu myndavéla- og dyrasímakerfi. Íbúðin er á 5. hæð með útsýni til norðurs og vesturs.
Forstofa er með fataskáp og þaðan er gengið í bjarta rúmgóða stofu sem er með stórum gluggum til norðus með fallegu útsýni.
Eldhúsið er með nýlegri og fallegri innréttingu frá IKEA, þar er mikið skápapláss en þar er tengi fyrir þvottavél. Borðkrókur er við glugga í eldhúsinu, en þaðan er gengið út á stórar breiðar svalir með útsýni yfir Esjuna.
Baðherbergið er snyrtilegt og vel skipulagt. Rýmið er flísalagt með góðum sturtuklefa með glervegg, innréttingu undir vaski og upphengdu salerni ásamt handklæðaofni.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskáp.
Gólfefni er nýlegt harðparket frá Birgisson og flísar á baðherbergi. Skipta var um rofa og tengla vorið 2026.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir 5 íbúðir sem eru á hæðinni, það er snyrtileg og góð aðstaða með sameiginlegri þvottavél og snúrum.
Í sameign er sér geymsla sem er 7,2 fm en einnig er snyrtileg vagna- og hjólageymsla við andyrrið að framanverðu.

Þangbakki 10 er staðsett við hliðina á verslunarmiðstöðinni Mjódd. Í Mjóddinni er heilsugæsla, apótek, matvöruverslun, snyrti- og hárgreiðslustofur og ýmis önnur þjónusta. Í Mjóddinni er einnig skiptistöð fyrir Strætó með tengingu við fjölda leiða. Hinumegin Breiðholtsbrautar er félagsaðstaða aldraðra og er göngufæri á milli gegnum undirgöng. Beint utan við aðaldyr hússins er Breiðsholtskirkja, en þar er einnig félagsstarf fyrir aldraða.


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. mar. 2025
47.700.000 kr.
52.000.000 kr.
10504 m²
4.950 kr.
24. okt. 2019
29.500.000 kr.
34.200.000 kr.
71.3 m²
479.663 kr.
3. feb. 2015
16.800.000 kr.
21.000.000 kr.
71.3 m²
294.530 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík