Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Borgarsíða 21

603 Akureyri

93.900.000 kr.

676.513 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145377

Fasteignamat

80.550.000 kr.

Brunabótamat

76.687.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
138,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Borgarsíða 21 - Skemmtilegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 138,8 m²


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð 81,2 m² :
Forstofa, hol, eldhús, stofa, svefnherbergi, snyrting, geymsla og þvottahús/bakinngangur.
Efri hæð 52,4 m² : Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. 

Forstofa er með flísum á á gólfi og tvöföldum skáp. 
Eldhús hefur verið endurnýjað. Hvít innrétting með hvíttaðri viðarlitaðri bekkplötu og þiljum fyrir ofan. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Ofnar, helluborð og háfur eru frá AEG. Rúmgóður borðkrókur með stórum suður glugga og hurð til suðurs út á um 75 m² timbur verönd. 
Stofa og hol eru með ljósu harðparketi á gólfi. Af holi liggur timbur stigi upp á efri hæðina. 
Sjónvarpshol er á efri hæðinni og þar er ljóst harðparket á gólfi og hurð út á suður svalir.
Svefnherbergin eru fjögur, öll ágætlega rúmgóð og með ljósu harðparketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Ljósar flísar á gólfi og stærstum hluta veggja ,hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc, walk-in sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum ofninn. 
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og hluta veggja, handlaug og wc. 
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi og ljós innrétting með skolvaska og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með flísum á gólfi og opnanlegum glugga. 
Önnur geymsla er með norðurhlið hússins skráð 5,2 m² að stærð og er utangengt í hana. 

Annað
- Eignin er skráð 138,2 m² að stærð er nýtanlegir fermetrar eru fleiri.
- Rúmgóð timbur verönd er með allri suðurhlið hússins. 
- Hluti af gleri hefur verið endurnýjað.
- Geymsluloft er yfir hluta og er hleri í loftinu á baðherberginu. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. mar. 2023
60.000.000 kr.
81.000.000 kr.
138.8 m²
583.573 kr.
20. sep. 2016
29.300.000 kr.
36.500.000 kr.
138.8 m²
262.968 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone