Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Klettaborg 28 íbúð 204

600 Akureyri

53.000.000 kr.

744.382 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2275158

Fasteignamat

48.900.000 kr.

Brunabótamat

39.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
71,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 3. nóvember 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Klettaborg 28 íbúð 204 - Skemmtileg 2-3ja herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í norður enda - stærð 71,2 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús. 

Forstofa er með flísum á gólfi. 
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með flísalagðri bekkplötu og flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Borðstofa með glugga til vesturs. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á vestur svalir. 
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og stórum eikar fataskáp. Herbergið er skv. teikningum 10,9 m² að stærð. 
Geymsla hefur verið notuð sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfi og stór opnanlegur gluggi. Geymslan er skv. teikningum 5,4 m² að stærð. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og baðkari með sturtutækjum og glervæng. 
Þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með vask og hillum. 

Annað
- Íbúðin er í norður-enda hússins á efri hæð.
- 5,2 m² svalir til vesturs, skemmtilegt útsýni. 
- Sameiginleg geymsla/inntaksrými er undir útitröppum. 
- Eignin er í stuttu göngufæri við háskólann, glerártorg o.fl.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. júl. 2020
30.600.000 kr.
26.700.000 kr.
71.2 m²
375.000 kr.
10. ágú. 2018
22.450.000 kr.
26.000.000 kr.
71.2 m²
365.169 kr.
22. sep. 2017
20.400.000 kr.
26.500.000 kr.
71.2 m²
372.191 kr.
8. jún. 2015
17.600.000 kr.
20.500.000 kr.
71.2 m²
287.921 kr.
4. okt. 2007
11.644.000 kr.
15.700.000 kr.
71.2 m²
220.506 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone