Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Þór Hilmarsson
Guðmundur H. Valtýsson
Vista
fjölbýlishús

Naustavör 26

200 Kópavogur

217.000.000 kr.

1.088.811 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2367495

Fasteignamat

162.000.000 kr.

Brunabótamat

167.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
199,3 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250 KYNNIR TIL SÖLU EINSTAKLEGA VANDAÐA ÍBÚÐ MEÐ STÓRKOSTLEGU ÚTSÝNI Á EINSTÖKUM STAÐ VIÐ NAUSTAVÖR 26 Í KÓPAVOGI.

Einstaklega falleg 4ra herbergja endaíbúð með glugga á þrjá vegu við Naustavör 26 í Kópavogi.
Íbúðin er skráð skv. HMS 199,3 fm. og þar af er geymsla 24,3 fm.
Fallegar innréttingar frá Brúnás, vandað parket og flísar á gólfum. 
Tvö baðherbergi eru í eigninni, vestursvalir og suðurverönd sem bjóða upp á skjól og sól á mismunandi tímum dags.
Eigninni fylgja tvö bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með hleðslustöðvum.
Stórfenglegt útsýni frá íbúðinni yfir smábátahöfnina, Esjuna, Nauthólsvíkina og Faxaflóann.
Einstök staðsetning framarlega á bryggjusvæðinu við Naustavör þar sem nálægð við sjóinn og náttúruna er í fyrirrúmi.

Nánari lýsing:
Anddyri:  Gengið er inn í rúmgott anddyri með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofur og alrými:  Sérlega stórar og bjartar stofur með parketi á gólfum sem flæða saman í opið og glæsilegt alrými. Stórir gólfsíðir gluggar tryggja góða dagsbirtu og ramma inn útsýnið yfir höfnina og sjóinn. Úr stofu er gengið út á útsýnissvalir sem snúa út á sjó og suðurverönd sem snýr að smábátahöfninni.
Eldhús: Opið eldhús með vönduðum innréttingum AEG tækjum. Eldhúsið er hannað með það í huga að hafa góða vinnuaðstöðu og njóta útsýnisins á sama tíma.
Baðherbergi: Rúmgott með góðri innréttingu, flísum á gólfi og veggjum og stórri sturtu með innbyggðum tækjum.
Tvö svefnherbergi: Bæði rúmgóð með parketi á gólfum og fataskápum,
Hjónasvíta: Rúmgott með fataherbergi og innangengt á sér baðherbergi með innréttingu og sturtu.
Þvottaherbergi: Stórt með flísum á gólfi, innréttingu með góðu vinnuplássi. Innrétting er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Bílageymsla: Tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri, snyrtilegri og upphitaðri bílageymslu með hleðslustöðvum.
Sérgeymsla:  Stór sérgeymsla er staðsett í kjallara eða 24,3 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 3800,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. maí. 2019
87.800.000 kr.
116.000.000 kr.
199.3 m²
582.037 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fjárfesting fasteignasala ehf.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Borgartúni 31, 105 Reykjavík