Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Strikið 8

210 Garðabær

103.900.000 kr.

931.004 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273529

Fasteignamat

92.600.000 kr.

Brunabótamat

67.810.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
111,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 1. nóvember 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Strikið 8, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 09. Eignin verður sýnd sunnudaginn 1. nóvember 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í Sjálandshverfi í Garðabæ í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri sem vert er að skoða. íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, samliggjandi stofu og borðstofu, sérþvottahúsi og suðursvölum með glerlokun. Eigninni fylgja sérgeymsla og stæði í bílageymslu. Hlýlegar viðarinnréttingar og stórir gluggar setja svip á íbúðina og opin tenging eldhúss og stofurýmis skapar skemmtilega heild.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð eignarinnar 111,6 m². Þar af er íbúð 106,8 m² og sérgeymsla 4,8 m². Svalir eru skráðar 7,7 m² og eru ekki hluti af birtri stærð. Húsvörður er í húsinu.  Húsið er steinsteypt og byggt árið 2006 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Samkomusalur í eigu húsfélagsins er í húsinu sem eigendur geta nýtt.


Nánari lýsing:
Forstofa og hol: Komið er inn í hol með góðum fataskápum.Þaðan er aðgengi að herbergjum og sameiginlegum íverurýmum íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Opið að borðstofu og stofu. Viðarinnrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. Helluborð og háfur yfir því. Lág skilveggseining afmarkar eldhúsið gagnvart borðstofurými og stofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með stórum glugga, fataskápum í viðarlit og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Með glugga og parketi á gólfi. Rýmið getur einnig nýst sem vinnuherbergi eða gestaherbergi.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug og spegli. Flísar á gólfi og veggjum.Sturtuklefi og handklæðaofn.
Geymsla / vinnuherbergi: Gluggalaus.  Innan íbúðar, með parketi á gólfi. Nýtist vel sem skrifstofa, tómstundaherbergi eða aukaherbergi.
Þvottahús: Sérstakt þvottarými inn af eldhúsi með skápum, vinnuborði og vaski. 
Svalir: Gengið er úr stofu út á svalir með glerlokun sem veitir skjól og eykur notagildi þeirra. Svalir eru skráðar 7,7 m² hjá HMS. 
Geymsla og bílastæði.  Sérgeymsla í kjallara er skráð 4,8 m². Eigninni fylgir stæði í bílageymslu þar sem búið er að gera ráð fyrir rafhleðslustöð.
Sameign: Einkar snyrtileg, vel við haldið og húsvörður er starfandi fyrir íbúa að Strikinu 2-12. Næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð.
Húsið og nærumhverfið: Strikið er í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Í næsta nágrenni er Jónshús við Strikið 6, þar sem Garðabær og Félag eldri borgara í Garðabæ standa fyrir félagsstarfi. Umhverfis húsið er falleg lóð sem hefur fengið viðurkenningu frá Garðabæ. Stutt er í alla þjónustu og fallegar gönguleiðir eru við sjávarsíðuna.

Allar upplýsingar veita  Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur [email protected] og Ingimar Ingimarsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur [email protected].

img
Börkur Hrafnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Börkur Hrafnsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2007
26.725.000 kr.
29.800.000 kr.
111.6 m²
267.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Börkur Hrafnsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík