Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
fjölbýlishús

Vesturbrún 14

104 Reykjavík

99.700.000 kr.

882.301 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019630

Fasteignamat

95.450.000 kr.

Brunabótamat

60.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1956
svg
113 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

CROISETTE kynnir í einkasölu bjarta og vel skipulagða 113 fm sérhæð á efstu í þríbýlishúsi við Vesturbrún 14 í 104 Reykjavík.

Virkilega vönduð falleg og björt útsýnisíbúð á þessum vinsæla stað. Hér koma hæðir nánast aldrei á sölu. 

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, skrifstofurými, stofu, borðstofu, rúmgott eldhús og baðherbergi.
Íbúðinni fylgja tvennar svalir, aðrar úr borðstofu og hinar við eldhús.
Fallegur flísalagður stigi liggur frá sérinngangi upp í íbúðina.
Úr íbúðinni er fallegt útsýni og sameiginlegur garður fylgir húsinu.
Eignin er á eftirsóttum stað steinsnar frá Laugardalnum og allri helstu þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Stephensen, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 777 0777 og [email protected]
Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090 og [email protected]


Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð í forstofu. Þaðan liggur fallegur stigi upp í íbúðina.
Hol: Rúmgott hol tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu og fallegu útsýni. Stofan er opin við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa í opnu rými með stofu. Útgengt er úr borðstofu á svalir.
Eldhús: Stórt eldhús sem er opið við hol. Góð innrétting er með gott vinnu- og skápapláss. Útgengt er á aðrar svalir við eldhús og stigapall.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp og gluggum á tvo vegu.
Skrifstofa: Skrifstofurými inn af holi, sem hentar vel sem vinnuaðstaða.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu, handlaug, salerni og glugga.
Geymsla: 5m2 á jarðhæð
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.

Hægt að bæta við þriðja svefnherberginu með einfaldri tilfærslu með að færa eldhús inní borðstofuna.

Þak tekið í gegn fyrir um tveimur árum.


Sameign og lóð: Sameiginlegur garður fylgir húsinu.

Staðsetning:
Vesturbrún 14 er á rólegum og eftirsóttum stað í göngufjarlægð frá Laugardalndum með allri þeirri útivist og afþreyingu sem þar er að finna, svo sem Laugardalslaug, Grasagarðinn og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Í næsta nágrenni eru einnig skólar, leikskólar, verslanir og önnur helsta þjónusta.

Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Stephensen, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 777 0777 og [email protected] 
Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090 og [email protected]

Eignin Vesturbrún 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-9630, birt stærð 113.0 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette - Knight Frank fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Styrmir Bjartur Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Croisette Iceland ehf
Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
img

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík

Styrmir Bjartur Karlsson

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík