Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1955
104,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. nóvember 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Öldugata 35, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Afar glæsileg og vönduð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum. Íbúðin er í fallegu fjögurra íbúða húsi við Öldugötu og hefur verið endurnýjuð að innanverðu að nær öllu leyti á síðustu árum.Eignin er 104,5 fm, þar af 6,5 fm sérgeymsla.
Lýsing eignar:
Forstofa og hol: Tengja saman rými íbúðarinnar. Vínylparket lagt í fiskibeinamynstur á gólfum og fataskápar.
Eldhús, borðstofa og stofa: Fallegt og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eina heild. Ljós og vönduð eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, stórri eyju sem hægt er að sitjast við. Glæsilegur marmari á borði og upp hluta af eldhúsvegg. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og fallegt vínylparket lagt í fiskibeinamynstur er á gólfum. Í stofunni eru sérsmíðaðar marmaraklæddar hillur og bókahilla með innfelldri lýsingu sem setja mikinn svip á rýmið. Útgengt er á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott herbergi með vínylparketi og fataskápum.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með vínylparketi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og flísalögð sturta glerskilrými. Innbyggð blöndunartæki eru við sturtu og vask. Góð innrétting er undir vaski og skápur er fyrir ofan salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru snyrtilega innfelld í vegg aftan við baðherbergishurðina. Hiti í gólfi.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara ásamt aðgangi að sameiginlegu þvottahúsi. Fallegur, sólríkur og skjólgóður sameiginlegur garður er aftan við húsið, með útgengi úr kjallara.
Sameign og stigahús eru snyrtileg. Nýtt teppi var lagt á stiga og stigahúsið málað um mitt ár 2021.
Neysluvatnslagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar 2021–2022 og raflagnir ásamt rafmagnstöflu innan íbúðar endurnýjaðar á sama tímabili.
Einstaklega vönduð og fallega endurnýjuð íbúð á frábærum stað í gamla Vesturbænum. Stutt er í skóla og leikskóla, alla helstu verslun og þjónustu og í þægilegu göngufæri við miðborgina og Grandann.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. mar. 2025
79.100.000 kr.
100.000.000 kr.
10201 m²
9.803 kr.
1. sep. 2021
52.800.000 kr.
56.600.000 kr.
104.5 m²
541.627 kr.
17. okt. 2017
43.100.000 kr.
43.500.000 kr.
104.5 m²
416.268 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026