Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Vista
svg

34

svg

28  Skoðendur

svg

Skráð  2. nóv. 2026

parhús

Huldudalur 21

260 Reykjanesbær

117.900.000 kr.

671.795 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530898

Fasteignamat

107.200.000 kr.

Brunabótamat

113.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
175,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt og glæsilegt fjögurra herbergja parhús að Huldudal 21 í Reykjanesbæ. Eignin er samtals 175,5 fm, byggð árið 2024, þar af er bílskúr 32,5 fm (íbúðarrými 143 fm). Um er að ræða vandað og bjart fjölskylduhús með aukinni lofthæð, gólfhita og vönduðum innréttingum.

*** Skipti á annari eign möguleg***


Skipulag eignar: Fjögur rúmgóð svefnherbergi, forstofa, eldhús og stofa í opnu alrými, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Alrými (stofa og eldhús): Sérlega bjart og rúmgott rými með gólfsíðum gluggum og aukinni lofthæð. Eldhúsinnrétting er frá HTH; blanda af ljósri mokkafilmu og dökkri eik. Vönduð tæki: innbyggður ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn.
Sjónvarpshol: Rúmgott og tengir saman svefnálmu og alrými.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru fjögur, öll mjög rúmgóð og búin fataskápum frá HTH.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með vandaðri innréttingu frá HTH, baðkari, rúmgóðri sturtu og útgengi út á verönd.
Þvottahús: Innrétting frá HTH með vaski og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð.
Bílskúr: 32,5 fm með epoxy á gólfi.
Lóð og nærumhverfi: Lóð er fullfrágengin. Steyptar stéttar og bílastæði með snjóbræðslu að framanverðu og rafhleðslustöð fyrir bifreið. Aftan við húsið er um 60 fm afgirt verönd með skjólveggjum og heitum potti.

** Byggingarár 2024 – allt nýlegt og vandað
** Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar í alrými
** Hiti í öllum gólfum hússins
** Innréttingar og fataskápar frá HTH, innihurðir frá Birgisson
** Steypt bílaplan með snjóbræðslu og hleðslustöð
** Um 60 fm verönd með skjólveggjum og heitum potti

Frábær staðsetning í nýlegu hverfi þar sem örstutt er í Stapaskóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug. Um 20 mínútna akstur á höfuðborgarsvæðið.
Glæsileg eign sem vert er að skoða.



Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Hákon Ólafur Hákonarson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. mar. 2024
55.050.000 kr.
105.900.000 kr.
175.5 m²
603.419 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík