Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
einbýlishús

Selbrekka 6

200 Kópavogur

119.900.000 kr.

675.113 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2064801

Fasteignamat

125.650.000 kr.

Brunabótamat

88.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
177,6 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Einbýlishúsið Selbrekka 6, Kópavogur
Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason.  Lg.fs.  Sími: 895-2115 eða [email protected]; kynna til sölu
  fallegt og vel staðsett 5 herbergja einbýlishús með rúmgóðum bílskúr við Selbrekku 6 í Kópavogi.
Eignin er alls skráð 177,6 fm, þar af er íbúðarhúsið 137,6 fm og bílskúr 40 fm. Húsið stendur á 688 fm gróinni og skjólgóðri lóð með fallegum garði og rúmgóðum útipalli í góðu skjóli. Það er staðsett innst í botnlanga á rólegum og fjölskylduvænum stað með einstöku útsýni til norðurs yfir stóran hluta Reykjavíkur og Esjuna.
Selbrekka 6 hefur aðeins verið í eigu tveggja fjölskyldna frá byggingu. Eignin er á eftirsóttum stað með stuttri og öruggri gönguleið í grunnskóla, góðu aðgengi að almenningssamgöngum og helstu verslun og þjónustu í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð.
Eignin er laus við kaupsamning og því hægt að afhenda hana með stuttum fyrirvara.


Vinsamlegast bókið sýningartíma hjá Snorra Snorrasyni lgf * [email protected] eða  í síma  8952115

Eignin skiptist í:
Anddyri: Flísalagt anddyri með fatahengi. Þaðan er gengið niður í kjallara.
Hol: Bjart og rúmgott miðrými með flísum á gólfi. Útgengt er á verönd og út í fallegan garð.
Stofa: Teppi á gólfi, gengið upp nokkrar tröppur frá holi
Eldhús: Dúkur á gólfi, upprunaleg eldhúsinnrétting  og eldavél.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi, dúkur á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi II:  Barnaherbergi, parket á gólfi.
Herbergi III: Barnaherbergi, flísar á gólfi og lítill skápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Eldri innrétting, baðkar og hvít hreinlætistæki.
Þvottahús:  Tengi er fyrir þvottavél í kjallara. 
Kjallari: Kjallarinn er í dag eitt opið og fjölnota rými þar sem milliveggir hafa verið fjarlægðir. Sturta er í einu horni kjallarans og auðvelt að gera þar baðherbergi. Sérútgangur  er út á gangstétt sem skapar fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Bílskúr: Rúmgóður 40 fm bílskúr með afþiljaðri geymslu. Máluð gólf, eldri rafdrifin bílskúrshurð og gönguhurð út í garð. Hiti, rafmagn og kalt vatn eru til staðar.
  • Nokkrir gluggar  hafa verið endurnýjaðir.
  • Raflagnir eru að mestu eldri en breytingar og viðbætur hafa verið gerðar eftir þörfum.
  • Nokkrir ofnar hafa verið endurnýjaðir og ofnalagnir að hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Snorri Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Snorri Snorrason

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Snorri Snorrason

Síðumúla 27, 108 Reykjavík