Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Múlasíða 9 íbúð 304

603 Akureyri

54.900.000 kr.

587.794 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149259

Fasteignamat

49.950.000 kr.

Brunabótamat

51.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
93,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur s. 466 1600

Múlasíða 9 íbúð 304 - Rúmgóð og falleg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýli í Síðuhverfi - stærð 93,4 m²

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Einnig fylgir íbúðinni sérgeymsla á jarðhæðinni. 

Forstofa er með flísum á gólfi og opnu hengi. 
Eldhús hefur verið endurnýjað. Hvít innrétting með dökkri bekkplötu og gráum flísum á milli skápa. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Harðparket er á gólfi. 
Stofa og hol eru með harðparketi á gólfi. Í stofu eru gluggar til tveggja átta og hurð til vesturs út á steyptar svalir. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð, með harðparketi á gólfum og fataskápum. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Gráar flísar á gólfum og hvítar veggjum. Hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi. Gólfhiti, stýrt í gegnum ofninn.
Þvottahús/geymsla er með dúk á gólfi, bekk með vask, hillum og opnanlegum glugga. 

Sérgeymsla er á jarðhæð hússins ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymsla.

Annað
- Beyki innihurðir.
- Eins harðparket er á helstu rýmum.
- Gler hefur verið endurnýjað fyrir einhverjum árum. 
- Snyrtileg sameign - búið er að endurnýja glugga og útidyrahurðar.
- Örstutt í leik- og grunnskóla.
- Eignin er laus til afhendingar í febrúar 2027

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone