Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1994
svg
176,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fallegt og vel skipulagt parhús með bílskúr á vinsælum stað við Bakkasmára í Kópavogi

Um er að ræða fallegt og vel skipulagt parhús á eftirsóttum stað í Kópavogi.
Eignin er samtals 176,8 fm að stærð, þar af er íbúðarrými 139,4 fm, sérgeymsla inn af bílskúr 8,9 fm og bílskúr 28,5 fm.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Á neðri hæð eru tvö herbergi með harðparketi á gólfum og fataskápum.
Stigi liggur upp á aðalhæðina og eru aðeins fimm þrep upp. Á efri hæð er hol með harðparketi.

Gestasnyrting er með flísum á gólfi og veggjum. Þar eru einnig tvö herbergi með harðparketi á gólfum og fataskápum.

Eldhúsið er með fallegri hvítri háglansinnréttingu, granítborðplötu, viftu, helluborði, ofni í vinnuhæð og glerplötu milli skápa.
Flísar eru á gólfi og gert er ráð fyrir uppþvottavél. Úr eldhúsi er gengið út á verönd.

Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með harðparketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir þar sem nýtur fallegs útsýnis.

Baðherbergið er í góðu almennu ástandi, með walk-in sturtu, fallegri innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.
Þaðan er einnig útgengt á verönd með skjólveggjum og heitum potti.

Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu.

Bílskúrinn er með hita, rafmagni og vatni. Inn af bílskúrnum er 8,9 fm sérgeymsla sem hefur verið innréttuð sem herbergi með snyrtingu
og hentar einstaklega vel sem unglingaherbergi eða aukarými.

Lóðin er sérlega falleg og vel skipulögð. Bílaplan er hellulagt og rúmar allt að fjóra bíla.

Helstu framkvæmdir á undanförnum árum samkvæmt seljanda:

2019: Skipt um hurðir og flísar í eldhúsi og forstofu.
2020: Skipt um þakjárn, pappa og þakglugga.
2021: Skipt um gler í gluggum og baðherbergi endurnýjað.
2022: Skipt um loftaklæðningu. Bílskúr innréttaður og snyrting sett upp.
2026: Múrviðgerðir á tröppum.

Eignin er staðsett á vinsælum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, verslanir, veitingastaði, íþróttamannvirki og ýmsa aðra þjónustu.
Hér er um að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign með góðu rými, fallegri lóð, heitum potti og rúmgóðum bílskúr á eftirsóttum stað í Kópavogi.



Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is


 

img
Eiríkur Svanur Sigfússon
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. mar. 2016
47.950.000 kr.
62.500.000 kr.
176.8 m²
353.507 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði