Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
180 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Víðir Arnar og Valhöll kynna Þórðargötu 16, 310 Borgarnes. Fjölskylduvænt fimm herbergja og mjög vel skipulagt 180,0 fm. raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Frábær staðsetning.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 75.750.000.-

Pantaðu skoðun í síma 854 2226 eða á [email protected]

Þórðargata 16 er steypt 2ja hæð raðhús með bílskúr byggt árið 1973. Húsið er 180,0 fm. að meðtöldum bílskúr sem er 25,7 fm. Á  neðri hæð er forstofa, hol, herbergi, þvottaherbergi/geymsla, geymsla sem gera átti að baðherbergi en er óklárað. Hringstiga er frá holi á efri hæð, komið er inn í stórt og gott alrými sem hefur stofu, borðstofu og eldhús, þrjú herbergi og baðherbergi. Svalir út frá einu herbergi og útgengt í bakgarð frá öðru herbergi. Pallar og skjólgirðingar er fyrir framan og aftan hús. Garður er vel gróin og snyrtilegur.

Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi
Hol: Fataskápur. Hringstigi. Flísar á gólfi
Herbergi: Fataskápur. Parket á gólfi.
Geymsla: Byrjað á framkvæmdum (breyta í baðherbergi), gólf að hluta verið brotið upp. Getur fylgt með m.a. vaskur, vaskaskápur, niðurfallsrist og niðurfall).
Þvottahús/geymsla: Nýleg innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur. Innst eru hillur sem nýtist sem geymsla. Málað gólf.
Alrými: Frá hringstiga er komið inn í alrými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús. Úr borðstofu er gengið þrjú þrep niður í parketlagða bjarta og rúmgóða stofu með fallegu útsýni. Rúmgott opið eldhúsi með fallegri u-laga ljósri innrétting og efri skápum. Mikið skápapláss og góð aðstaða. Flísar á gólfi í borstofu og eldhúsi. 
Herbergi I:  Sérsmíður fataskápur er í hjónaherberginu. Tekinn var niður veggur milli herbergja og hjónahergið stækkað. Útgengt er út á svalir. Parket á gólfi.
Herbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi
Herbergi III: Útgengt í bakgarð. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með speglaskápum fyrir ofan. Upphengt salerni. Rúmgóð sturta. Flísar á veggjum og gólfi.

Bílskúr: Stærð bílskúrs er 25,7 fm. Vatn, rafmagn og hiti í bílskúr. Rafdrifin bílskúrshurð (2015). Innangengt er úr bílskúr inn í hús. Málað gólf
Lóð: Lóðin er 320,0 fm. og er fyrir framan og aftan hús. Aðkoma mjög góð, tvö bílastæði fyrir framan bílskúr. Góð timburveröld fyrir aftan hús. Garðskúr.

Húsið var mikið endurnýjað árið 2002, m.a. skipt um neysluvatnslagnir, forhitari á heita vatnið, rafmagn, nýjar innihurðir, skipt um öll gólfefni, eldhús stækkað og eldhúsinnrétting + tæki endurnýjuð. Loftaklæðning endurnýjuð, veggir gipsklæddir, baðherbergi endurnýjað, skipt um þakjárn og pappa. Hjónaherbergið stækkað og sameinað úr tveimur herbergjum. Á síðustu árum hafa allir gluggar yfirfarnir, gólf á svölum múrað, þakantur málaður, húsið múrviðgert að utan og málað, ný innrétting í þvottahús, skipt um útiljós o.fl.

Eigninni hefur verið vel við haldið og lýtur vel út. Aukin lofthæð að hluta til á efri hæð. Stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, heilsugæsla, skólaskýli og leikskóli í göngufæri.

Hægt er að skoða með skömmum fyrirvara, lyklar á skrifstofu.


Nánari upplýsingar veita:​​​​​​
Víðir Arnar Kristjánsson / s. 854 2226 / [email protected]
 

img
Víðir Arnar Kristjánsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Víðir Arnar Kristjánsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. apr. 2018
24.900.000 kr.
36.500.000 kr.
180 m²
202.778 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Víðir Arnar Kristjánsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík