Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Stóragerði 8

108 Reykjavík

79.900.000 kr.

684.662 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2033316

Fasteignamat

77.600.000 kr.

Brunabótamat

58.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1962
svg
116,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA [email protected]

ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: 
Virkilega huggulega og endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni á efstu hæð með 2 svölum við Stóragerði 8, 108 Reykjavík. Eigninni fylgir 20,9fm bílskúr í bílskúrslengju á lóð. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin er skráð 95,8fm þar af er 6,7fm geymsla í kjallara.

Eignin samanstendur af: 3 svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og borðstofu, 2 svölum. bílskúr ásamt 2 geymslum.

Nánari lýsing 
Forstofuhol:
Er rúmgott, harðparketi á gólfi.
Eldhús / Borðstofa / Stofa: Eru í sameiginlegu opnu björtu og flæðandi rými með fallegu útsýni. Eldhúsið er með fallegri innréttingu á tvo vegu með innbyggðri uppþvottavél, span helluborði, gert er ráð fyrir ísskáp við hlið innréttingu. Úr stofunni er útgangur út á svalir.
Baðherbergi: Er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta , innrétting er með tveimur skúffum, þreplausri sturtu, opnanlegum glugga, veggföstu salerni ásamt handklæðaofni, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi 1: Er með fataskápum ásamt útgangi út á svalir. Parketi á gólfi.
Herbergi 2 og 3: Eru rúmgóð með harðparketi á gólfi. 
Geymslur: Eru 2, önnur er innan íbúðar með parketi á gólfi en hin er 6,7fm að stærð og er í sameign
Bílskúr: Er 20,9fm að stærð með heitu og köldu vatni.

Samkvæmt fyrra söluyfirlit voru helstu framkvæmdir 2025:
* Eldhús fært fram í stofu og þriðja svefnherberginu bætt við
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum
* Baðherbergi endurnýjað 
* Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina, ný ljós og nýir tenglar
* Öll gólfefni endurnýjuð
* Öll eignin spörsluð og máluð
* Innihurðar endurnýjaðar

Endurbætur á sameign:
2018 - Húsið endursteinað
2022 - Sléttir fletir málaðir
2022 - Hitaþræðir settir í þakrennur

Athugasemd um stærð eignar:
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er íbúðin skráð 95,8 m² en samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu er hún 93,2 m². Samkvæmt upplýsingum frá HMS stafar mismunurinn af því að fasteignaskrá var ekki uppfærð þegar eignaskiptayfirlýsingunni var þinglýst árið 1996.

Þetta er vel skipulögð íbúð á frábærum stað í Reykjavík. Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Örstutt er í Austurver með alla sína þjónustu (matvöruverslun, bakarí, læknavakt, o.fl.). Stutt í verslunarmiðstöðina Kringluna.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja Aldir því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

img
Guðný Þorsteinsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Aldir fasteignir
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
img

Guðný Þorsteinsdóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. maí. 2025
73.100.000 kr.
55.500.000 kr.
30401 m²
1.826 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi

Guðný Þorsteinsdóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi