Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Halla Vilbergsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Risadalur 4I - 205

260 Reykjanesbær

69.900.000 kr.

603.627 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2538092

Fasteignamat

72.500.000 kr.

Brunabótamat

73.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
115,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
Opið hús: 13. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:45

Opið hús: Risadalur 4I - 205, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 02 02 05. Eignin verður sýnd föstudaginn 13. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:45.

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Risadalur 4I, 260 Reykjanesbær, birt stærð 115.8 fm.
Fjögurra herbergja nýbygging með sjávarútsýni – Dalshverfi III, Reykjanesbæ. Laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er björt og vel skipulögð, fjögur herbergi, í nýju og fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Hún er á efri hæð með sér inngangi og svölum til suðvesturs, og úr henni er glæsilegt sjávarútsýni. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum.

** Þrjú svefnherbergi
** Efri hæð með glæsilegu sjávarútsýni
** Sér inngangur
** Svalir til suðvesturs
** Fullbúin að innan sem utan, með gólfefnum
** Afhending við kaupsamning


Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali,  í síma 560-5501 tölvupóstur [email protected]. 
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].


Um verkefnið
Dalshverfi III er nýtt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í Innri-Njarðvík. Þar rísa alls 20 fjölbýlishús á tveimur hæðum, og eru níu íbúðir í hverju húsi. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og vel skipulagðar, tveggja til fjögurra herbergja. Þær eru allar með sér inngangi, og svalir og sólpallar snúa til suðvesturs.

Skilalýsing
Eignin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu byggingaraðila.

Gólfefni og eldhús
Parket á stofu, eldhúsi og herbergjum
Eldhúsinnréttingar frá HTH eða sambærilegar að gæðum
Helluborð, bakaraofn og háfur frá AEG eða sambærilegt

Baðherbergi
Flísar á gólfi og á tveimur til þremur veggjum, upp í 2,1 m hæð
Upphengt salerni, innbyggt í vegg
Sturta með flísalögðum sturtubotni
Handklæðaofn

Hús og frágangur
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum
Ál/trégluggar
Veggir spartlaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit
Þakplata varin með tveimur lögum af viðurkenndum heilbræddum þakpappa, XPS-einangrun, jarðvegsdúk og harpaðri þakmöl (60–80 mm)
Nánari lýsingu er að finna í skilalýsingu byggingaraðila.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati. Gjaldið er lagt á eftir að endanlegt brunabótamat liggur fyrir.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone