Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
raðhús

Úugata 15

270 Mosfellsbær

139.900.000 kr.

823.426 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2524789

Fasteignamat

77.100.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
169,9 m²
svg
4 herb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fasteignasalan Pálsson kynnir: Glæsilegt NÝTT fjögurra herbergja endaraðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Úugötu 15 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 169,9 fm, þar af íbúðarhluti á tveimur hæðum 145,4 fm og bílskúr 24,5 fm. 
Á neðri hæð er anddyri, svefnherbergi með salerni inn af, þvottahús, geymsla og bílskúr. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, þar af annað með baðherbergi inn af, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt og fallegt útsýni er af efri hæðinni. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

https://uugata3-15.gerd.is//#pdf


Eignin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu seljanda í mars 2027. Vandaðar innréttingar frá Nobilia/GKS trésmiðju, með áferðum í hnotu og hvítu, og kvartsborðplötur í eldhúsi. Eldhústæki eru frá Siemens og spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Húsið er með gólfhitakerfi með þráðlausri stýringu. Loftskiptakerfi er í húsinu. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Sjá nánar í skilalýsing seljanda.

NÁNARI LÝSING : Neðri hæð : 
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi: Með fataskáp. Inn af herbergi er salerni með flísalögði gólfi og upphengdu saleri, gluggi er á baði.
Þvottahúsið: Er rúmgott með innréttingu og skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, flísar á gólfi.
Geymsla: Við hliðina á inngangi.
Bílskúr: Með steyptur og með vélslípuðu gólfi. Bílskúrshurð er með sjálfvirkum opnunarbúnaði með fjarstýringu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla við hvern bílskúr.
Efri hæð : 
Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Nobilia/GKS trésmiðju, í hnotu og hvítu og með kvartsborðplötu. Spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi er fellt niður í borðplötu. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Önnur eldhústæki eru frá Siemens.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými með eldhúsi, aukin lofthæð og stórir gluggar til suðurs. Útgengt úr eldhúsi út á suður svalir með mjög fallegu útsýni.
Svefnherbergi: Þrjú (tvö á efri hæð og eitt á neðri hæð) og eru öll með fataskápum.
Baðherbergi: Tvö og eitt salerni og eru með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og baðherbergin með sturtu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi og salernið er inn af herbergi á neðri hæð.

Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf.
Húsið er staðsteypt, einangrað með steinull og klætt að utan með álklæðningarkerfi og bambusklæðningu. Gluggar, svalahurðir og inngangshurðir eru úr ál/tré.Innihurðir eru hvítar frá Grauthoff. Flísar eru frá Ceramiche Piemme, af gerðinni Journey í litnum Otta Natural, 60 × 60 cm, frá Álfaborg. Húsið er upphitað með gólfhitakerfi og handklæðaofnar eru á baðherbergjum. Rafrænt loftskiptikerfi er í húsinu og ljósleiðari verður til staðar. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Ídráttarrör eru út í baklóð fyrir vatn og eða auka lýsingu. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Sjá nánari upplýsingar í skilalýsingu seljanda.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík