Lýsing
Miklaborg fasteignasala kynnir:
Glæsilegar íbúðir í 12 íbúða lyftuhúsi á fjórum hæðum með lokuðum bílakjallara. Húsið stendur á eftirsóttum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.
Íbúðirnar eru með gólfhita, gólfsíða glugga, steinborðplötur á innréttingum og sjálfstætt loftskiptikerfi. Hverri íbúð fylgir sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og afhendast fullbúnar án gólfefna, nema í votrýmum.
Frábær staðsetning í nýju og spennandi hverfi í Garðabæ, þar sem stutt er í helstu stofnæðar, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði.
***Sjá nánar hér á heimasíðu verkefnisins***
Bókið einkaskoðun hjá Báru Gunnlaugsdóttir í síma 899-8809 eða [email protected]
Íbúð 202 er 3ja herbergja með stæði í bílageymslu og glæsilegu útsýni til norð-austurs.
Allar nánari upplýsngar veita:
Bára Gunnlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða [email protected]
Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða [email protected]
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða [email protected]
Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða [email protected]
Birt stærð íbúðarinnar eru 101 fm, þar af 7.1 fm geymsla.
Eignin skipstist í þrjú svefnherbergi með skápum, baðherbergi með sturtu, eldhús með eyju sem er opið inn í bjarta stofu. Stæði í lokaðri bílageymslu.
Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu eign, ert að stækka eða minnka við þig, eða ert að leita að nútímalegu og vönduðu heimili, þá er hér um að ræða kost sem vert er að skoða.
Verktaki er GG verk, sem stofnað var árið 2006 og er rekið við góðan orðstýr. Fyrirtækið hefur byggt yfir 1500 íbúðir og atvinnurými og leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi fagmennsku. GG verk er ISO vottað fyrirtæki.