Opið hús: Brávallagata 50, BÓKIÐ SKOÐUN: JASON SÍMI 7751515 , Íbúð merkt: 09 02 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. nóvember 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Íbúðin skiptist í hol, fatahengi, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu.
Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.
Komið er inn í parketlagt hol með eik. Þar innaf er lítil geymsla/fataskápur. Hvítar innihurðir eru í íbúðinni sem hefur verið töluvert endurnýjuð.
Eldhúsið er með harðparketi, nýrri borðplötu, eldhúsinnréttingu og borðkrók.
Baðherbergið er endurnýjað og með baðkari og glugga. Handklæðaofn.
Stofan er með harðparketi á gólfi.
Við hlið stofu er stórt hjónaherbergi með eikarparketi og hægt er að opna á milli rýma.
Svefnherbergi II er með eikarparketi á gólfi.
Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla með glugga sem hefur verið skipt upp í tvö rými.
Sameiginlegt þvottahús og einnig er sameiginlegt svæði í kjallara þar sem hverri íbúð hefur verið ráðstafað ákveðnu svæði til umráða.
Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið hlotið gott viðhald. Íbúðin er í 4ra íbúða stigahúsi.
Lóðin er fullfrágengin og afgirt með hellulagðri stétt, grasflöt og trjábeðum og er í óskiptri sameign hússins.
Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira.
Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.