Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Vista
fjölbýlishús

Bakkabraut 13a íb505

200 Kópavogur

180.000.000 kr.

1.358.491 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2242821

Fasteignamat

2 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
132,5 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með fallegu útsýni og tvennum svölum til suðvesturs og austurs. Íbúðin er við Bakkabraut 13A, merkt 0505, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er björt og vel skipulögð, með stórum gluggum, aukinni lofthæð, tveimur svefnherbergjum, þar af hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, auk annars baðherbergis, rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpskrók og eldhúsi, sérþvottahúsi og forstofu. Eignin er samtals 132,5 m², þar af er íbúðin 123,5 m² og sérgeymsla í kjallara 9,0 m². Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara, merkt B30. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang [email protected] 
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins VESTURBAKKI

Nánari lýsing íbúðar 505: Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í bjart og opið alrými með aukinni lofthæð, þar sem rúmgóð stofa, borðstofa, sjónvarpskrókur og eldhús með eyju mynda fallega heild. Eldhúsið er með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og bjóða upp á fallegt útsýni. Frá alrýminu er útgengt á 9,3 m² suðvestursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, þar af rúmgóð hjónasvíta með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á 7,0 m² austursvalir. Hitt svefnherbergið er einnig rúmgott. Auk þess er annað baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar.

Afhending íbúðar 505: Auglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupendum kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullbúna án megingólfefna á 200.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil er að finna í skilalýsingu seljanda.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang [email protected] 
Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.

Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptakerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. des. 2015
94.900.000 kr.
320.000.000 kr.
2932.1 m²
109.137 kr.
6. feb. 2008
76.050.000 kr.
846.825.000 kr.
4007.6 m²
211.305 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ