Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2024
107,7 m²
3 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega vönduð og falleg útsýnisíbúð með stórum þaksvölum á 6. hæð í Vesturvin. Vegleg hjónasvíta, gólfsíðir gluggar, aukin lofthæð og einstakt útsýni til sjávar og vestur yfir borgina. Þaksvalirnar teygja sig umhverfis íbúðina frá suðvestri til norðurs. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á svölunum. Hágæða innréttingar frá ítalska merkinu Cassina, steinn á borðum og vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens. Gólfhiti er í allri íbúðinni sem og loftskiptikerfi sem tryggir góð loftgæði. Veglegt viðarparket er á gólfum. Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu. Afar falleg aðkoma er að Vesturvin bæði frá sjávarsíðunni sem og frá inngarðinum. Fallegur gróður, lýsing og listaverk setja svip sinn á inngarðinn.**Sækja söluyfirlit**
Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
Eignin er skráð 107,7fm og telur forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, 82 fm þaksvalir, þvottahús, geymslu og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög gott skápapláss með innfelldri lýsingu. Skápar ná upp í loft.
Eldhús: Eldhús er opið við stofu í mjög björtu og opnu alrými með glæsilegu útsýni. Vegleg, ítölsk innrétting frá Cassina með steini á borðum, stórri eyju og innfelldri lýsingu. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Tæki eru frá Miele og Siemens.
Stofa: Gólfsíðir gluggar og einstakt útsýni til sjávar, til vesturs yfir borgina, út á Gróttu og Snæfellsnes. Útgengi á þaksvalir.
Þaksvalir: Þaksvalirnar eru 82 fm og teygja sig umhverfis íbúðina frá suðvestri til norðurs með stórkostlegu útsýni. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á svölum.
Hjónasvíta: Rúmgóð með góðum fataskápum og gólfsíðum gluggum með útgengi út á þaksvalir. Flísalagt baðherbergi er inn af hjónaherbergi með stórri walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og veglegri innréttingu með stein á borðum. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu.
Herbergi: Gott herbergi með gólfsíðum glugga og útgengi út á þaksvalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með stórri walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Vegleg innrétting og steinn á borði. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtu.
Þvottahús: Sér þvottahús er innan íbúðar. Góð innrétting með rými fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur í innréttingu.
Geymsla: Góð 7,7 fm geymsla er staðsett á geymslugangi í kjallara hússins.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2025
49.700.000 kr.
565.000.000 kr.
30606 m²
18.460 kr.
17. maí. 2024
9.490.000 kr.
565.000.000 kr.
30606 m²
18.460 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026