Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
einbýlishús

Árdalur 19

735 Eskifjörður

82.900.000 kr.

427.981 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2300829

Fasteignamat

62.250.000 kr.

Brunabótamat

126.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
193,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Árdalur 19, Eskifjörður: Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, byggt 2007, í enda götu innst í bænum. Húsið stendur við opið svæði með útsýni til fjalla og út fjörðinn. Birt stærð er 193,7 m², þar af 40,0 m² bílskúr, og lóðin er 858 m².

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist upp í forstofu, eldhús með borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, þar af eitt í bílskúrshluta hússins, fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi, annað baðherbergi, litla geymslu, þvottahús og bílskúr.

- Einbýlishús á einni hæð, byggt 2007
- Eldhús með eyju, dökkum steinborðplötum og tveimur ofnum í vinnuhæð
- Stofa með uppteknu lofti, bogaglugga og kamínu
- Fjögur svefnherbergi, þar af eitt í bílskúrshluta hússins
- Fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi
- Tvö flísalögð baðherbergi með sturtu
- Hitaveita og gólfhiti
- Viðarklædd loft með innfelldri lýsingu
- Timburpallur með skjólveggjum og heitum potti, útgengt úr stofu og úr baðherbergi inn af hjónaherbergi
- Innbyggður bílskúr með geymslu og vinnuaðstöðu
- 858 m² lóð í enda götu, útsýni til fjalla og út fjörðinn

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa: Flísar á gólfi, innbyggðir skápar og skúffur. Tvöföld útihurð með gleri.
Eldhús: Flísar á gólfi. Hvít innrétting með dökkum steinborðplötum, eyja með helluborði og háfi, tveir ofnar í vinnuhæð og gluggar yfir vaskborði.
Borðstofa: Í sama rými og eldhús, flísar á gólfi og innfelldir glerskápar í vegg.
Stofa: Parket á gólfi, upptekið loft, bogagluggi og stórir gluggar með útsýni til fjalla. Kamína. Útgengt á pallinn.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Fataherbergi inn af með hillum og skúffum og baðherbergi inn af.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Í bílskúrshluta hússins. Flísar á gólfi, gluggi og útihurð. Herbergið er ekki á samþykktum uppdrætti hússins.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innbyggð sturta með glerþili, upphengt salerni, innrétting með steinborði, handklæðaofn og gluggi.
Baðherbergi 2: Minna baðherbergið, inn af hjónaherbergi. Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, upphengt salerni og innrétting. Útgengt á pallinn að heita pottinum.
Geymsla: Lítið geymslurými með innbyggðum hillum, flísar á gólfi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting með vaski og gluggi.
Bílskúr: Innbyggður, 40,0 m² skv. HMS, með bílskúrshurð. Hluti hans er innréttaður sem svefnherbergi, sjá að ofan; annar hluti er nýttur sem geymsla og vinnuaðstaða.
Lóð og ytra byrði: 858 m² leigulóð. Timburhús með standandi timburklæðningu. Timburpallur með skjólveggjum og heitum potti. Hellulagt bílaplan og hlaðin blómaker við inngang.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2300829
Stærð: Einbýlishús, birt stærð 193,7 m² (íbúð 153,7 m² og bílskúr 40,0 m²)
Byggingarár: 2007
Byggingarefni: Timbur
Gildandi fasteignamat: 62.250.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 60.900.000 kr.
Brunabótamat: 126.800.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, leigulóð, stærð lóðar er 858,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. sep. 2022
35.200.000 kr.
69.200.000 kr.
193.7 m²
357.253 kr.
20. ágú. 2018
30.200.000 kr.
48.500.000 kr.
193.7 m²
250.387 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður