Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Holtsvegur 55

210 Garðabær

134.900.000 kr.

844.709 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2520408

Fasteignamat

108.700.000 kr.

Brunabótamat

101.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
159,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
Opið hús: 25. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Holtsvegur 55 - Glæsileg 5 herbergja útsýnisíbúð auk bílskúrs - opið hús miðvikudaginn 25. nóvember á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega, bjarta, glæsilega og mjög vel skipulagða 5 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð með stórum suðaustur svölum og bílskúr innaf bílageymslu í vönduðu og vel staðsettu fjölbýlishúsi með lyftu við Holtsveg í Garðabæ.  Örstutt er í leikskóla, barnaskóla, leikvelli, fótboltavöll og á golfvöll.

Bílskúr, sem er innaf bílskýli hússins, er 28,7 fermetrar að stærð og er með gluggum, rennandi heitu og köldu vatni og rafhleðslustöð. 

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og með fataskápum. 
Hol, parketlagt.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með einstöku útsýni og útgengi á 14,5 fermetra svalir til suðausturs.
Eldhús, opið við stofu og með góðri borðaðstöðu. Fallegar hvítar + bæsaðar eikarinnréttingar með innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél. Eyja með helluborði og hangandi háfi yfir.
Svefngangur, parketlagður.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum og útsýni.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum og útsýni. 
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fatsakápum og útsýni. 
Baðherbergi, stórt, flísalagt gólf og veggir, innbyggðir skápar í vegg, vaskskápar, vegghengt wc., handklæðaofn og flísalögð sturta.  
Þvottaaðstaða, er í hluta baðherbergis og eru stæði fyrir vélar í vinnuhæð í góðri innréttingu.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt, fataskápar á heilum vegg og útsýni.

Á jarðhæð hússins eru:
Bílskúr, innaf bílageymslu, 28,7 fermetrar að stærð með gluggum, hita, rennandi heitu og köldu vatni og hleðslustöð fyrir rafbíl.
Sérgeymsla, 10,0 fermetrar að stærð og með góðri lofthæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, flísalögð og stór með miklum gluggum og útgengi á baklóð hússins.

Húsið að utan er klætt með flísum og því viðhaldslítið. 
Lóðin er fullfrágengin með stórri innkeyrslu með fjölda bílastæða, helllulögðum stéttum með hitalögnum undir og tyrfðum flötum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað við opið svæði, örstutt frá barnaskóla, leikskóla, sundlaug, kaffihúsi, leikvöllum, afgirtum og flóðlýstum gervigrasvelli og golfvelli Oddfellow.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. feb. 2023
83.150.000 kr.
104.000.000 kr.
159.7 m²
651.221 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone