Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
156,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
Opið hús: 23. nóvember 2026 kl. 16:15 til 16:45

Vinsamlegast skráðu þig á sölusýningu á slóðinni í lýsingunni hér fyrir neðan.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Margrétarhagi 3. Glæsileg nýleg íbúð í parhúsi í Hagahverfi á Akureyri. Húsið er staðsteypt með einhalla þaki, steyptu bílaplani og innbyggðum bílskúr.

** Eignin verður sýnd mánudaginn 23. nóvember kl 16:15-16:45 - Smelltu hér og skráðu þig á sölusýningu **
** Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður **


Eignin er skráð 156,3 fm og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi með baðherbergi, tvö barnaherbergi, þvottahús og bílskúr ásamt því að yfir eldhúsi er vinnurými sem er ekki í skráðum fermetrum og stór geymsla á háalofti.

Forstofa: Er með flísum á gólfi.
Stofa: Er með mikilli lofthæð og innfeldri lýsingu, gólfsíðir gluggar eru á rýminu og rennihurð út á steyptan pall.
Eldhús: Góð innrétting með innbyggðum ísskáp og frysti, bakaraofn og combi ofn í vinnuhæð, tækjaskáp og rúmgóðri eyju. Gott bekkjarpláss. Bekkjarplötur eru steyptar.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti af veggjum. Rúmgóður sturtuklefi með innmúruðum tækjum. Frístandandi baðkar og vegghengt salerni.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur. Inn af hjónherbergi er baðherbergi með sturtu og vegghengdu salerni.
Barnaherbergi: Eru tvö í eigninni, bæði með parketi á gólfum og fataskápum.
Þvottahús er hluti af bílskúr, þar er góð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, gott skápa og bekkjarpláss.
Bílskúr er með lökkuðu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð með gönguhurð í. Geymsluhilla er yfir hluta af bílskúr. Seljandi klárar að klæða loft í bílskúr fyrir afhendingu.

- Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar frá Brúnás. Flísar eru frá Vídd, parket er frá Harðviðarvali og hurðar frá Birgisson.
- KNX stjórnkerfi
- Loftskiptikerfi. 
- Loftadúkur í flestum loftum. 
- Stéttar í kringum húsið eru steyptar ásamt steyptum skjólveggjum. 
- Allar steyptar stéttar og plön eru með snjóbræðslu.
- Geymsluskúr fyrir framan hús er óeinangraður.
- Virkilega vönduð og falleg eign.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri