Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Dalsbraut 34

260 Reykjanesbær

49.900.000 kr.

773.643 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511937

Fasteignamat

48.600.000 kr.

Brunabótamat

39.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
64,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, bjarta og vel skipulagða 64,5 fermetra 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, mjög góðu aðgengi og skjólsælli og afgirtri lóð til suðurs í fallegu 15 íbúða fjölbýlihúsi á eftirsóttum stað við Dalsbraut í Reykjanesbæ.  Húsið er klætt að utan með áli og viðarklætt og lítur mjög vel út. 

Innréttingar eru mjög fallegar, gráar, sprautulakkaðar og ná upp í loft og fallegt parket er á gólfum.  Rúllugluggatjöld eru í öllum gluggum.


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með fjórföldum fataskáp. 
Eldhús, parketlagt og opið við stofu. Mjög fallegar gráar innréttingar með Siemens tækjum og Samsung uppþvottavél og ísskáp með frysti.
Stofa, mjög rúmgóð, björt og parketlögð með útgengi á stóra afgirta og skjósæla lóð til suðurs með hellulagðri verönd og tyrfðri flöt.
Svefnherbergi, parketlegat og rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, vegghengt wc., handklæðaofn, vaskskápur og veggskápar og stór flísalögð sturta með sturtugleri.  Fremst í baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð hússins.

Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og lerki klæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál og tré. 
Dalsbraut 36 er 2ja hæða hús með 15 íbúðum, sbr. teikningar arkitekta. Í hverri byggingunni  eru kaldir stigagangar með inngöngum beint inn í íbúðirnar.  Góð hljóðeinangrun er á milli íbúða en plötur milli íbúða eru 22 cm og veggir 20 cm sem gefur aukna hljóðeinangrun.  Húsið stendur á stórri fullfrágenginni lóð með hellulögðum stéttum með hitalögnum undir, tyrfðum flötum og fjölda bílastæða með sameiginlegum hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jún. 2021
11.150.000 kr.
31.700.000 kr.
64.5 m²
491.473 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone