Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Flétturimi 31

112 Reykjavík

96.900.000 kr.

841.146 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2039846

Fasteignamat

79.950.000 kr.

Brunabótamat

61.090.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
115,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir: Bjarta og rúmgóða 4–5 herbergja íbúð á 3. og efstu hæð við Flétturima 31 í Grafarvogi, með útsýni til sjávar, mikilli lofthæð og um 24 fm millilofti. Sérmerkt stæði í bílskýli fylgir.


Íbúðin er vel skipulögð með björtu og opnu alrými. Mikil lofthæð í hluta íbúðarinnar gefur henni sterkan karakter og hefur verið nýtt fyrir rúmgott milliloft sem hentar sem svefnloft, vinnuaðstaða eða sjónvarpsrými. Húsið er steinsteypt, byggt 1993, og deilir íbúðin stigagangi aðeins með einni annarri íbúð.



Samkvæmt skráningu HMS er birt heildarstærð eignarinnar 115,2 fm, þar af 7 fm sérgeymsla í kjallara. Breytingar hafa verið gerðar á eigninni frá upphaflegum teikningum. Milliloftið er um 24 fm og er ekki innifalið í birtri fermetratölu. Auk þess hefur íbúðin aðgang að sameiginlegu þvottahúsi sem staðsett er inn af andyri á sömu hæð ásamt hjólageymslum í sameign.


Athugið, búið er að breyta eigninni frá upphaflegum teikningum og að gólfflötur milliloftsins kemur ekki fram í birtri fermetratölu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða [email protected]
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða [email protected]

Nánari lýsing: Forstofa: Rúmgóð, með mikilli lofthæð og góðum fataskáp. Hol: Parket á gólfi. Þaðan liggur teppalagður stigi upp á milliloft. Stofa og borðstofa: Björt og opin alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum til tveggja átta. Ljósabrautir í lofti. Frá stofu er gengið út á vestursvalir. Svalir: Rúmgóðar, með fallegu útsýni til sjávar. Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, ljós steinn á borðum, háfur yfir helluborði, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Hjónaherbergi: Rúmgott, með mikilli lofthæð og stórum fataskáp. Svefnherbergi 1 og 2: Bæði rúmgóð og björt. Baðherbergi: Flísalagt að hluta, walk-in sturta með glervegg og regnsturtu, upphengt salerni, vegghengd innrétting og speglaskápur með lýsingu. Gestasnyrting: Flísar á gólfi, upphengt salerni og vegghengd innrétting. Milliloft (um 24 fm): Svartur stigi með teppalögðum þrepum liggur upp á loftið. Glerveggur með gluggatjöldum snýr að stofu og stór þakgluggi hleypir inn ríkulegri birtu. Ljósabrautir í lofti. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingu. Sameign og fylgirými: Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús á hæðinni þar sem hver íbúð á hæðinni hefur sín tengi. Hjólageymslur: Tvær sameiginlegar hjólageymslur, á jarðhæð og í kjallara. Geymsla: 7 fm sérgeymsla í kjallara. Bílastæði: Sérmerkt stæði í opnu bílskýli á lóð. Staðsetning: Eignin er í rólegu og grónu umhverfi í Rimahverfi. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri og stutt er í strætó, líkamsrækt, Grafarvogslaug og verslun. Göngu- og hjólastígar eru meðfram ströndinni.

Allar nánari upplýsingar veita
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða [email protected]
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2025
73.750.000 kr.
82.000.000 kr.
10304 m²
7.958 kr.
30. des. 2020
48.050.000 kr.
52.000.000 kr.
115.2 m²
451.389 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík