Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingibjörg Þórðardóttir
Þórður S. Ólafsson
Ólafur Már Ólafsson
Vista
fjölbýlishús

Framnesvegur 42

101 Reykjavík

95.800.000 kr.

951.341 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000832

Fasteignamat

88.900.000 kr.

Brunabótamat

59.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
100,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. nóvember 2026 kl. 16:30 til 17:15

Lýsing

Opið hús þriðjudaginn 24. nóvember frá kl 16:30 til 17:15 - Framnesvegur 42, 101 Reykjavík

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 


Falleg og vel skipulögð eign í nýlegu (byggt 2019) húsi á frábærum stað í gamla Vesturbænum. Íbúðinni hefur verið skipt og nýtist sem tvær aðskildar íbúðir.
Eignin er samtals 100,7 fm (efri hæð 43,4 og neðri hæð 57,3 fm). Hægt er að ganga beint inn í íbúðina á neðri hæðinni um sérinngang úr portinu aftan við húsið.

Einnig væri einfalt að sameina íbúðirnar aftur og nýta báðar hæðir saman. 

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 eða á netfanginu [email protected]

Lýsing eignar:
Sameiginleg forstofa með harðparketi á gólfi og fataskáp. Tvær útidyrahurðir þar sem gengið er inn í efri íbúðina og í neðri íbúðina.

Efri íbúð 0101.
Eldhús: Dökk viðarinnrétting, tengi fyrir þvottavél, harðparket á gólfi, borðkrókur, opið við stofu.
Setustofa: Björt stofa er opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á svair sem snúa inn í bakgarð og port aftan við húsið.
Svefnherbergi: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salerni, svört viðarinnrétting undir vaski, handklæðaofn.

Neðri íbúð 0001: Úr sameiginlegri forstofu er gengið niður steyptan og breiðan stiga í íbúð neðri hæðar. Stiginn er teppalagður og með stálhandriði.
Sjónvarpshol: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Eldhús: Dökk viðarinnrétting með góðu skáplássi, harðparket á gólfi, gluggi. Léttur veggur aðskilur eldhús og svefnrými.
Svefnrými: Harðparket á gólfi, útgengi á steypta verönd með sérafnotarétti, þessa hurð er einnig hægt að nýta sem sérinngang í íbúðina á neðri hæðinni.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salernu, svört innrétting undir vaski, handklæðaofn. 
Þvottahús/geymsla: Innst í íbúðinni, flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, skolvaskur, skápur aftan við hurð. Inn af þvottahúsinu er lítil geymsla þar sem væri hægt að setja upp hillur á sitthvora höndina.

Falleg og vel staðsett eign með góða tekjumöguleika - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina og Grandann. 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2024
74.150.000 kr.
84.500.000 kr.
100.7 m²
839.126 kr.
30. jún. 2021
52.250.000 kr.
63.500.000 kr.
100.7 m²
630.586 kr.
19. okt. 2015
35.500.000 kr.
120.000.000 kr.
328 m²
365.854 kr.
18. júl. 2007
26.110.000 kr.
27.100.000 kr.
115.8 m²
234.024 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone