Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
115,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 25. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Baugakór 19-23, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 09. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Baugakór 19-23 Kópavogi - Glæsileg 4ra herb. fjölskylduíbúð (endaíbúð) með gluggum á þrjá vegu / Sérinngangur og sérstæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 115,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svalagangi og góðum svölum til vesturs í fjölbýlishúsi við Baugakór 19-23 í Kópavogi. Sérstæði í bílakjallara fylgir íbúð ásamt 9,0 fermetra geymslu í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús og útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs. Þrjú svefnherbergi. Fallegt baðherbergi og þvottaherbergi inn af íbúð. 

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og sameiginleg malbikuð bílastæði á framlóð. Búið er að koma upp rafhleðslustöðvum einnig á sameiginlegum bílastæðum fyrir framan hús. Fallegur tyrfður bakgarður með gróðri og sameiginlegum garðbekk.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Kórunum í Kópavogi. Frábært staðsetning í næsta nágrenni við Hörðuvallaskóla, Kórinn íþróttasvæði og verslun og þjónustu. Stutt í útivistarparadís með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Elliðavatni og inn í Heiðmörk.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Gangur: Með harðparketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs og norðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús og með útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Var endurnýjað nýlega á glæsilegan máta. Harðparket á gólfi og vönduð eldhúsinnrétting með eyju frá GKS (Nobilia) með flísum á milli skápa. Innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, bakaraofn og stórt spansuðu helluborð. Lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili, upphengt salerni, innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan og handklæðaofn
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, innrétting (með hækkun) undir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss og vaskur.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til norðurs og austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Merkt B16 í kjallara. Grunnkerfi fyrir rafhleðslu komið í bílakjallara.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,0 fermetrar að stærð. 
Hjóla og vagnageymsla: Málað gólf og gluggi. Útgengi beggja vegna á lóð. Snyrtileg með hjólasnögum.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected]

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. sep. 2019
40.900.000 kr.
52.800.000 kr.
115.4 m²
457.539 kr.
7. des. 2015
29.900.000 kr.
38.000.000 kr.
115.4 m²
329.289 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur