Opið hús: Fellahvarf 27, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignin er skráð 119,0 fm. og eru allir skráðir fermetrar innan eignarinnar.
Eignin telur tvö svefnherbergi (hægt að bæta þriðja herberginu við skv. teikningum), anddyri, rúmgóða stofu, eldhús, sjónvarpshol, þvottahús, geymslu og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa mjög rúmgott og opið rými með flísum á gólfi og fallegu útsýni yfir Elliðavatn. Útgengt er út á hellulagða verönd með skjólveggjum út stofunni.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, góður eldhúskrókur, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Sjónvarpshol á gangi með flísum á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, vifta og flísar á gólfum og veggjum.
Þvottahús og geymsla mjög rúmgott rými með glugga, innrétting, gott hillupláss og flísar á gólfi.
Fyrir framan eignina er hellulagður sérafnotareitur þar sem hluti reitsins er afgirtur og annar hluti með skjólvegg.
Í sameign er vagna- og hjólageymsla á hæð íbúðar.
Um er að ræða fallega eign á frábærum stað með fallegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.