Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Vista
sumarhús

Húsasund 21

805 Selfoss

34.900.000 kr.

853.301 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2207564

Fasteignamat

28.500.000 kr.

Brunabótamat

28.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
40,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Húsasund 21, 805 Selfoss, Fallegt mikið endurnýjað sumarhús staðsett í fallegu  landi Hraunborga í Grímsnesi. Aðeins 50 mín akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Húsið sem er A - hús er skráð hjá FMR 40,9fm en svefnloft sem telur tvö svefnherbergi er ekki inni í fermetra tölu hússins. húsið stendur á 5000m2 lóð.
Húsgögn geta fylgt með í kaupunum. 
Á svæðinu eru sundlaug og 9 holu par 3 golfvöllur.
Á undanförnum árum hefur húsið verið endurnýjað og má þar með telja eftirfarandi:
  • 2020 var settur gólfhiti í flest gólf jarðhæðar.
  • 2021 vínylparket á alrými, eldhús og svefnherbergi
  • 2021 eldhús endurnýjað, sett upp falleg Ikea innrétting.
  • 2021 gólfefni, handlaug og innrétting á baðherbergi endurnýjað.
  • 2023 hitaveitugrind endurnýjuð og settur forðakútur fyrir hitaveitu (gjöfull)
  • 2023 ný svalahurð og svalir endurnýjaðar 
Frekari lýsing:
Komið er inn í anddyri: á anddyri er slitsterkt og fallegt vínylparket og er það samstætt á öllum gólfum.
Baðherbergi: á hægri hönd er baðherbergi  með handlaug, sturtuaðstöðu, og salerni. og innréttingu.
Eldhús: er endurnýjað með fallegri IKEA innréttingu á 2 veggi og áfastri eyju/eira.
Alrými: er opið og bjart, það rúmar setustofu og borðstofu, gengið er upp á svefnloft frá alrými og einnig út á sólpall, þar er heitur pottur.
Svefnherbergi: Á rislofti eru 2 svefnherbergi og er annað með útgengi á litlar svalir.
Geymsla: Undir stiga er búið að útbúa geymslu með aðgengið frá eldhúsi. Einnig er lítil geymsla í lagnarými.og köld geymsla er á lóð (Costco skúr)                                                
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ragnarsdóttir Fasteignasali, í síma 6630464, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. sep. 2020
12.750.000 kr.
15.500.000 kr.
40.9 m²
378.973 kr.
7. feb. 2019
12.700.000 kr.
11.300.000 kr.
40.9 m²
276.284 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone