Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og rúmgóða 110.2 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í nokkuð góðu fjölbýlishúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Húseign og sameign er öll hin snyrtilegasta og í góðu ástandi. Íbúð sem býður uppá mikla möguleika.
Frábær staðsetning þar sem að stutt er í skóla, leikskóla, alla þjónustu og göngufæri við miðbæ Reykjavíkur.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða [email protected]
Upplýsingar um eign samkvæmt HMS:
Íbúð er 104.2 fm merkt 01-03-05 og geymsla er 6 fm merkt 01-00-35 alls 110.2 fm.
Eign skiptist í:
Forstofu/hol, tvær stofur, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara, sameiginlegt þvottaherbergi og hjólageymslu í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Aðalstofa er björt og opin með útgengi á rúmgóðar vestur svalir.
Innaf stofu er sjónvarpsstofa með tvöfaldri rennihurð á milli, sem að mætti breyta í svefnherbergi eða færa eldhús inn í það rými.
Rúmgott hjónaherberbergi með nýlegum fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Eldhús er rúmgott með eldri innréttingu, borðkrókur.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og hluta veggja, sturtuklefi.
Sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi og hjóla/vagnageymsla í kjallara. Gufubað er einnig í kjallara.
Gólfefni: Eikarparket, korkflísar og flísar á gólfum íbúðar.
Eign sem hefur mikla möguleika fyrir laghentan aðila.
Nýlega er búið að laga alla húseign að utan.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða [email protected]
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.