Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Flétturimi 28

112 Reykjavík

71.900.000 kr.

860.048 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2218549

Fasteignamat

63.700.000 kr.

Brunabótamat

48.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1995
svg
83,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson, löggiltur fasteignasali (s. 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala, kynna í einkasölu:

FALLEG, BJÖRT OG VEL SKIPULÖGÐ 4 HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ GÓÐU ÚTSÝNI Á EFTIRSÓTTUM OG FJÖLSKYLDUVÆNUM STAÐ VIÐ FLÉTTURIMA 28 Í GRAFARVOGI.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagða 83,6 fm íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Flétturima 28 í Rimahverfi í Grafarvogi. Íbúðin býður upp á þrjú svefnherbergi, björt og opin alrými, svalir með góðu útsýni ásamt þvottahúsi og geymslu innan íbúðar. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.

Húsið er steinsteypt, byggt árið 1995 og var málað að utan árið 2018.

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR:

* Þrjú svefnherbergi.
* Björt stofa og eldhús í opnu og skemmtilegu rými.
* Svalir með góðu útsýni.
* Þvottahús og geymsla innan íbúðar.
* Sérmerkt bílastæði.
* Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
* Barnvænt og fjölskylduvænt hverfi.
* Stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
* Íbúðin er laus til afhendingar.

Birt stærð samkvæmt skráningu HMS: Íbúðin er 83,6 fm, merkt 02-02.

Nánari lýsing eignar: 

Forstofa: Komið er inn í snyrtilega forstofu með fatahengi. Þaðan tekur við gangur/hol sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar. Svefnherbergi: Íbúðin er með þremur svefnherbergjum. Tvö þeirra eru staðsett á hægri hönd þegar gengið er inn frá forstofu. Hjónaherbergið er með fataskáp. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtuaðstöðu ásamt innréttingu með neðri skáp. Þvottahús og geymsla: Innan íbúðar er sér þvottahús og geymsla með hillum. Stofa og eldhús: Bjart og opið alrými. Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu. Frá stofu er útgengt á svalir með góðu útsýni. Gólfefni: Parket og flísar eru á gólfum íbúðarinnar.

Sameign: Á 1. hæð hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Einnig er sameiginlegt óráðstafað rými (innanhúss) sem hefur verið stúkað niður með veggjum en ekki lokað og hver íbúð hefur sitt afmarkað geymslurými.

Staðsetning og nærumhverfi

Flétturimi 28 er staðsettur í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Grunnskóli og leikskóli eru í göngufæri og göngustígar liggja víða um hverfið, sem býður upp á góða möguleika til útivistar og hreyfingar.Í næsta nágrenni er fjölbreytt verslun og þjónusta í Spönginni auk íþrótta- og afþreyingarmöguleika í Egilshöll.

HÉR ER Á FERÐINNI VIRKILEGA FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ FJÖLSKYLDUÍBÚÐ ÞAR SEM FARA SAMAN BJÖRT RÝMI, GOTT ÚTSÝNI OG FRÁBÆR STAÐSETNING. ÞRJÚ SVEFNHERBERGI, ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR OG SÉRMERKT BÍLASTÆÐI.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma
: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]

Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

img
Andri Sigurðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Aldir fasteignir
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
img

Andri Sigurðsson

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. maí. 2024
57.900.000 kr.
68.500.000 kr.
50202 m²
1.364 kr.
14. des. 2018
34.500.000 kr.
38.500.000 kr.
83.6 m²
460.526 kr.
14. ágú. 2014
19.200.000 kr.
25.100.000 kr.
83.6 m²
300.239 kr.
27. okt. 2008
18.350.000 kr.
23.500.000 kr.
83.6 m²
281.100 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi

Andri Sigurðsson

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi