Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyrið er mjög rúmgott með fjórföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er í opnu rými með stofu og borðstofu. Eldhúsinnréttingin er glæsileg og nær upp í loft öðru megin. Hún er með góðum skúffum, ofni í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Borðplatan er frá S. Helgason og er úr ljósum Quartz stein með undirlímdum vaski. Þá er Quartz steinn á milli skápa. Eyjan er sérsmíðuð og er með niðurfelldu spanhelluborði.
Stofa/borðstofa er björt og er með harðparketi á gólfi. Útgengt er á mjög rúmgóðar suðvestursvalir frá borðstofu.
Baðherbergið er með ljósgráum flísum á veggjum og snyrtilegri innréttingu með sérsmíðuðum vask úr ljósum Quartz steini, walk - in sturtu og upphengdu innfelldu salerni.
Hjónaherbergið er rúmgott og er með fataskápum á heilum vegg sem ná alveg upp í loft. Harðparket er á gólfi.
Barnaherbergi er bjart og rúmgott. Harðparket á gólfi.
Á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Í bílakjallaranum er sérmerkt stæði sem fylgir eigninni.
Sér geymsla er í sameign sem er um 8 fm og í sameign á 1. hæð. er hjóla- og vagnageymsla.
Lóðin er verulega snyrtileg eins og húsið í heild.
Þetta eru verulega góð eign þar sem engu hefur verið til sparað. Vinsamlegast bókið skoðun hjá fasteignasala.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.