Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Atli S. Sigvarðsson
Vista
einbýlishús

Tunguás 1

210 Garðabær

220.000.000 kr.

877.893 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2246964

Fasteignamat

186.200.000 kr.

Brunabótamat

136.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2000
svg
250,6 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala kynnir: Fallegt einbýlishús við Tunguás 1 í Ásahverfinu í 210 Garðabæ. Húsið er viðhaldslétt og staðsett á hornlóð með glæsilegt útsýni í átt að Bessastöðum og Snæfellsjökli. Garðurinn er fallega hannaður með lýsingu, timburverönd. Húsið er skráð samtals 250,6 fm. og þar af er bílskúrinn 38,7 fm. Auk þess er 10 fm. geymsluskúr á lóðinni með rafmagni. Eignin skiptist í  fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Gólfhiti og ofnar eru í húsinu. Laust fljótlega.

Efri hæð; Anddyri, stofa, eldhús, snyrting, bílskúr og geymsla. 
Neðri hæð; Hjónasvíta, sjónvarpshol, 3 rúmgóð barnaherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Nánari lýsing:
Efri hæð
Forstofa: komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með eikarfataskáp sem hefur verið lakkaður svartur. Á hægri hönd er gott flísalagt fatahol og er innangengt í bílskúr frá fataholi sem er með góðu skápaplássi.
Gestasnyrting: Er með fallegri innréttingu granít á borði og upphengt salerni. Gólfhiti.
Eldhús: Eldhúsið er fallega hannað, vel útbúið með vönduðum tækjum. Nýlegur Miele ofn. Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og kvartsstein á borðum. Gashelluborð með fallegum háfi. Gaskútur fyrir utan húsið. Löng og góð eldhúseyja með vaski, innfelldri uppþvottavél og góðu skúffuplássi. Gólfsíður gluggi með rennihurð, frönskum svölum með rimlum fyrir. Gólf er flísalagt með fallegum flísum, þeim sömu og í anddyri og á gestasnyrtingu. Fyrir 5 árum voru nýjar flísar settar á votrými og gólfhita bætt við. Teikningar eru ekki í samræmi við samþykktar teikningar. 
Stofa: Er björt með gegnheilu niðurlímdu parketi á gólfi sem var pússað fyrir 5 árum og í leiðinni litað með svörtu. Aukin lofthæð með innfelldri lýsingu. Stórir gluggar með miklu útsýni á Snæfellsjökul, Bessastaði, Seltjarnarnes og víðar. Gasarinn og skenkur er glæsilegur og setur einstaklega fallegan svip á stofuna. Gólfsíðir gluggar og rennihurð með rimlum eins og í eldhúsi.

Neðri hæð 
Gengið er niður parketlagðan stiga  á neðri hæð hússins.  Neðri hæðin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Gott sjónvarpsherbergi sem er parketlagt og er útgengt út á verönd með heitum potti (sem þarfnast lagfæringa) af svefnherbergisgangi. Innaf sjónvarpsherbergi er hjónasvíta.
Hjónasvíta: Herbergið er parketlagt að mestu en flísar liggja meðfram gólfsíðum gluggavegg inn að baðherbergi, fataherbergi er inn af hjónaherberginu með góðu fatahengi, hillum og skúffum. Fallegt útsýni út í garð.
Baðherbergi er með sturtu, nýlegum tækjum, innréttingu og vegghengdu salerni. Blöndunartæki fyrir heita pottinn.
Barnaherbergi: Barnaherbergi eru andspænis hjónasvítu og eru alls þrjú. Stærðir herbergja eru 13 fm, 10,1 fm og 9,6 fm og eru þau öll með fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfum og með gluggum til norðurs. Endaherbergið sem er 13 fm er einnig með gólfsíðum rúmgóðum glugga til suðurs. 
Baðherbergi:  Glæsilegt baðherbergi sem var allt endurhannað og endurnýjað árið 2023. Glæsilegur marmarasteinn á borði. Frístandandi baðkar. Sturta með innfelldum blöndunartækjum. Gluggi er á baðherbergi. Falleg lýsing í loftum og innréttingu. Gólfhiti baðherbergis var endurnýjaður 2023. 
Þvottahús með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. Vaskur og niðurfall. Geymsla innaf þvottahúsi sem nýtist sem þurrkherbergi.
 
Bílskúr: 38,7 fm. og er með rafstýrðri hurð og nýlegu epoxy á gólfi. Innaf  honum er geymsla. Gott skápapláss og skóhillur eru í bílskúr. Lagnir fyrir vask. Utan um lagnagrindur eru svartar rennihurðir.

Hiti í plani, zink skjólveggur er að framanverðu þar sem hægt er að njóta morgunsólarinnar. Húsið er viðhaldslétt með zinkþaki. Garðurinn er vel hannaður, afgirt timburverönd með heitum potti er á neðri pallinum. Rúmgóður geymsluskúr er í garðinum. Falleg lýsing og glæsilegur gróður sem hefur verið hugsað vel um.
Þetta er einstaklega vel hannað 250 fm útsýnis hús, þar sem vandað hefur verið til við hvert smáatriði. Mjög vel staðsett í Ásahverfi í 210 Garðabæ. Sjón er sögu ríkari.

Hafið samband og bókið skoðun: Páll Þórólfsson, s. 893-9929 [email protected] - löggiltur fasteignasali og/eða Atli S. Sigvarðsson, s. 899-1178 [email protected] - löggiltur fasteignasali. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Páll Þórólfsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Páll Þórólfsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2015
67.600.000 kr.
87.000.000 kr.
250.6 m²
347.167 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Páll Þórólfsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík