Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Súðarvogur 3

104 Reykjavík

82.900.000 kr.

898.158 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516553

Fasteignamat

77.600.000 kr.

Brunabótamat

69.610.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
92,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 29. nóvember 2026 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: Súðarvogur 3, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 29. nóvember 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Súðarvogur 3 í Reykjavík - Glæsileg og rúmgóð 3ja herb. íbúð á þriðju hæð með þvottaherbergi inn af íbúð og extra stóru bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu glæsilega, bjarta og vel skipulagða 92,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með góðum svölum sem snúa inn í bakgarð hússins í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Súðarvog 3 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk. Glæsilegt fiskibeinaparket á alrými og vandaðar innréttingar frá GKS.


Rúmgott alrými sem er opin stofa (borðstofa og setustofa) við eldhús. Bílastæði er extra stórt og er staðsett á góðum stað í lokuðum bílakjallara. Útgengi úr stofu á svalir. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 12,2 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Myndavéladyrasími í íbúðum. Fallegur bakgarður með göngustígum, kvöldlýsingu og leiktækjum.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með parketi (fiskibeina) á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með parketi (fiskibeina) á gólfi og gluggum sem snúa inn í bakgarð hússins. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Snúa inn í bakgarð hússins og er svalagólf klætt með viði.
Eldhús: Með parketi (fiskibeina) á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og vifta. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg innrétting frá Nobila (GKS) við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Er rúmgott með teppi á gólfi, skápum og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergi II: Með teppi á gólfi, skápum og gluggum.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett og extra stórt (eitt besta bílastæðið).
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 12,2 fermetrar að stærð.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á lóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected]

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. okt. 2023
68.800.000 kr.
69.000.000 kr.
92.3 m²
747.562 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur