Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Langalína 11

210 Garðabær

118.900.000 kr.

965.881 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2285044

Fasteignamat

98.850.000 kr.

Brunabótamat

68.790.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
123,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;

Glæsileg 4 herbergja íbúð á jarðhæð með stórum sólpalli við Löngulínu 11

ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING


Sérlega vel skipulögð íbúð en hún telur forstofu, sjónvarpshol, stofu og eldhús í opnu rými, 3 rúmgóð svefnherbergi eru innan íbúðar ásamt glæsilegu baðherbergi með baðkari og sturtu. Sér þvotthús innan íbúðar. Útgengt er út á stóran sólpall frá stofunni.

Íbúðin sjálf er 115,2 fm auk geymslu í sameign sem er 7,9 fm. Samtals eru þetta 123,1 fm auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. 

* Gólfsíðir gluggar í stofu sem gefa eigninni fallegt yfribragð.
* Rúmgóður sólpallur fylgir eigninni
* Baðkar og sturta á baðherbergi
* þvottahús innan íbúðar
* Stæði í bílakjallara fylgir
* 3 Rúmgóð svefnherbergi


Nánari lýsing:
Anddyri með góðum eikarfataskápum sem ná upp í loft
Eldhús er bjart með fallegri eikarinnréttingu, steinplata er á borðum, bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Stofan & borðstofan er opin og björt með gólfsíðum gluggum með útgengt á rúmgóðan sólpall. 
Sér sjónvarpshol er í alrými eignar
Rúmgott hjónaherbergi með stórum eikarfataskápum sem ná upp í loft og parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með upphendu salerni, sturtu, innrétting með vaski, steinborðplata. Sér baðkar, vegleg tæki frá Grohe og handklæðaofn er á vegg.
Sér þvottahús, gólf er flísalagt, gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Sér geymsla er 7,9 fm ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign.
Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi.
Lyfta er í húsinu.

Um er að ræða frábæra staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem leik og grunnskóli eru í göngufæri.
Leiktæki fyrir börn eru á sameiginlegri lóð hússins.
Fallegar göngu- og hjólastígaleiðir eru meðfram sjónum og frábært útivistarsvæði í nágrenninu.

* Eigandi eignarinnar hefur ekki búið í eigninni og getur því ekki gefið nánari upplýsingar um ástand hennar nema það sem tekið er fram í söluyfirliti.
* Kaupendum er því bent á að skoða eignina gaumgæfilega með fagmanni.

Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

DIXON fasteigna & jarðasala

Aðalstræti 5, 450 Patreksfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. mar. 2015
36.600.000 kr.
47.500.000 kr.
123.1 m²
385.865 kr.
1. nóv. 2010
31.300.000 kr.
31.750.000 kr.
123.1 m²
257.920 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

DIXON fasteigna & jarðasala

Aðalstræti 5, 450 Patreksfirði
phone