Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Víðimýri 16

600 Akureyri

74.900.000 kr.

650.174 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151810

Fasteignamat

62.850.000 kr.

Brunabótamat

53.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1953
svg
115,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Víðimýri 16 - Skemmtilegt 3-4ra herbergja einbýlishús, hæð og ris á horn lóð í grónu hverfi á Brekkunni - stærð 115,2 m² 


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Hæð 79,9 m²:
Forstofa/aðalinngangur, hol, eldhús, borðstofa, stofa, baðherbergi, þvottahús og geymsla. 
Ris 35,3 m²: Hol, geymsla og tvö svefnherbergi. 

Forstofa/aðalinngangur er með plastparketi á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á hol með flísum á gólfi og þar er stigi upp í risið. 
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað. Þar er dökkt harðparket á gólfi, grá innrétting með dökkbrúnni bekkplötu og gráum fibó plötum á milli skápa. Lítil uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir hún með við sölu eignar. Opið er úr eldhúsinu yfir í borðstofuna og þaðan yfir í stofu. 
Borðstofa og stofa eru með ljósu plastparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, ljós viðar innrétting og speglaskápur, upphengt wc, sturta og opnanlegur gluggi. 
Hol á efri hæðinni er með ljósu plast parketi á gólfi. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði á efri hæðinni. Stærra herbergið er með ljósu plast parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Minna herbergið er til norðurs og án gólfefna. 
Geymsla er undir súð í risi. Önnur geymsla er inn af þvottahúsinu með dökku harðparketi á gólfi, hillum og opnanlegum glugga. 
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina. Þar er dökkt harðparket á gólfi og bekkur með skolvaska. 

Annað
* Timburverönd er frá aðalinngangi, með suðurhliðinni og að bílastæði norðan við hús. Borið var á dekk og skjólveggir málaðir 2026.
* Geymsluskúr er á veröndinni. 
* Rúmgott malbikað bílaplan. 
* Frárennsli hefur verið endurnýjað undir húsi og út í götu. 
* Búið er að endurnýja hluta af raflögnum og í töflu.
* Búið er að taka inn ljósleiðara.
* Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jan. 2020
32.300.000 kr.
36.800.000 kr.
115.2 m²
319.444 kr.
20. júl. 2015
20.850.000 kr.
25.500.000 kr.
115.2 m²
221.354 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone