Lýsing
Miklaborg kynnir: Það er eitthvað svo óvenjulega einstakt við þessa lóð, jaðarlóð með kyrrð og frið í deiliskipulögðu sumarhúsahverfi skammt frá Laugarvatni, Reykholti, Friðheimum svo ekki sé talað um alfaraleið gullna hringsins. Gullmoli á suðurlandi með víðsýnt útsýni. Lóðin er 5398 fm leigulóð með leigusamningi til 50 ára frá 2013. Húsið er skráð 40,1 fm hjá fasteignaskrá en til viðbótar er ca. 9 fm geymsla og svefnloft. Pallur umhverfis húsið með skjólgirðingu og heitum potti. Frábært kauptækifæri.
Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.
Sjá kynningu um eignina hér https://www.littlebluehouseiceland.com/video-tour og staðsetningu hér https://ja.is/kort/?type=aerial&page=1&q=tj%C3%B6rn%20l%C3%B3%C3%B0%2027&x=427277&y=413682&nz=17.97
Nýlegt harðparket er á gólfum en komið er inn í forstofu með fatahengi. Tvö svefnherbergi annað með kojum og hitt rúmar tvíbreitt rúm. Eldhús og stofa í opnu björtu rými þaðan sem er útgengt á pall. Baðherbergi er með sturtuklefa, skápainnréttingu undur handlaug og flísalagt gólf. Svefnloft er til viðbótar við uppgefna fermetra og þar gætu 4-6 manns gist en þar er opnanlegt fag.
Inntaksgeymsla er til hliðar við aðalinngan bústaðar og einnig er ca. 9 fm verkfærageymsla þar sem mætti t.d. koma fyrir þvottavél.
Lóðarleiga er rúmlega 100 þús á ári og kostnaður vegna hitaveitu ca. 10 þús á mánuði. Lóðarleigusamningur gildir í 50 ár frá 2013.
Staðsetning hússins er góð, stutt á marga þekktar perlur suðurlands ásamt golfvöllum Kiðjabergs, Öndverðarness og Flúða. Opinbert leyndarmál sem bíður eftir kaupanda sem vill njóta og lifa.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða [email protected]