Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Dúfnahólar 6

111 Reykjavík

84.500.000 kr.

527.137 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2048577

Fasteignamat

81.800.000 kr.

Brunabótamat

80.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
160,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 26. ágúst 2026 kl. 17:00 til 18:00

Opið hús: Dúfnahólar 6, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 103. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 26. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

Lýsing

DÚFNAHÓLAR 6, 111 REYKJAVÍK.  

Falleg og björt FIMM herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Hólahverfinu.
Birt stærð eignar er skráð 160,3 fm., þar af er 11,5 fm. sérgeymsla og 28,8 fm. bílskúr. 
Merkt matseining hjá HMS er 03 0103. Húsið var byggt árið 1974.
Tveir inngangar eru inn í húsið, að framanverðu á jarðhæð og að aftanverðu fyrstu hæð.

Í dag skiptist eignin í forstofu/hol, eldhús, stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu sem staðsett er í sameign.
 

Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagða forstofu/hol með stórum fataskáp.
Parketlögð stofa þar sem útgengt er á suðvestur svalir. Lokuð borðstofa/herbergi inn af stofu.
Eldhús með borðkrók, efri og neðri skápum, span helluborði og uppþvottavél. 
Fjögur parketlögð svefnherbergi. Þrjú þeirra með skáp. Í dag er hjónaherbergið tvískipt, þ.e. annarsvegar herbergi með miklu skáparými og hinsvegar svefnherbergi.  
Flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni og góðu skápaplássi. 
Þvottahús er innan eignar með ræstivaski og góðu hilluplássi. Samkvæmt upphaflegum teikningum var þar annað baðherbergi.
11,5 fm. sérgeymsla í sameign með hillum og opnanlegu fagi. 
Sameiginlegt þvottahús, ásamt tveimur þurrkherbergjum í sameign. Hjóla og vagnageymsla.
Rúmgóður og snyrtilegur 28,8 fm. bílskúr með bílskúrshurðaopnara, heitu og köldu vatni.  
Mynddyrasímakerfi í sameign var sett upp 2026. Stigahús var nýlega teppalagt og málað.

Dúfnahólar 6 er mjög vel staðsett fjölbýli í Hólahverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir. 
Örstutt er í fjölbreyttar gönguleiðir í Elliðaárdal.


Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / [email protected]  
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Kristján Þór Sveinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Kristján Þór Sveinsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. feb. 2020
48.600.000 kr.
48.000.000 kr.
160.3 m²
299.439 kr.
2. maí. 2014
25.200.000 kr.
28.200.000 kr.
160.3 m²
175.920 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Kristján Þór Sveinsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík