Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
140,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 18. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Brekkugata 3, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 07. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali  kynnir 5.herbergja 140,5 m2 endaíbúð á 2.hæð í lyftuhúsi við  Brekkugötu 3 í Urriðaholti í Garðabæ. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Tvennar svalir eru á íbúðinni og sést bæði til fjalla og til sjávar. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir . Einnig er afar stutt í náttúruna við Urriðavatn og í Heiðmörk. Eignin er skráð 5 herbergja samkvæmt teikningu og eignarskiptasamning , en er nýtt í dag sem 4.herbergja. 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú til fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Íbúðarhlutinn er skráður 132,9 m2 auk 7,6 m2 geymslu.  Að auki er stæði í bílageymslu. 

Nánari lýsing eignar.
Forstofa er inn af snyrtilegri sameign með lyftu. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf sem flæðir um flest rými eignarinnar. Í forstofu er fjórfaldur hvítur fataskápur sem nær upp í loft.
Stofa með gluggum í tvær áttir, til norðurs og austurs og er útsýni þaðan út á Esjuna um glugga í vínkil. Útgengi er út á 8,1 m2 svalir til norðvesturs.
Borðstofa tengir saman stofu og eldhús. 
Sjónvarpsrými ( svefnherbergi ) er inni í stofu er á teikningum fjórða svefnhergbergið (9,2 m2). Allar lagnir eru til staðar til að útbúa þar herbergi, eins og gert var ráð fyrir í upphafi.
Eldhús er með innréttingu á einum vegg. Neðri skápar eru hvítir og efri ljósbrúnir. Undir efri skápum er innfelld lýsing. Grá borðplata með helluborði og vaski. Vifta yfir helluborði. Sér eining skilur að eldhús og borðstofu. Á þeim vegg er bakaraofn, hillusamstæða og stæði fyrir ísskáp.( þessi veggur er léttur , og þvi auðvelt að taka hann niður )
Herbergi (I ) er næst forstofu. Rúmgott 13,4 m2 herbergi með þreföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Útgengi er út á 5,2 m2 suðaustur svalir, þar sem sólar nýtur við fram á miðjan dag.
Herbergi (2) er með tvöföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Gluggi snýr til austurs. Þetta herbergi er jafn stórt herberginu við hliðina, 10,7 m2.
Herbergi (3)  er með tvöföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Gluggi snýr til austurs.
Baðherbergi er með ljósgráum gólf- og veggflísum. Stór innrétting á einum vegg, með skúffum og skápum. Grá borðplata. Hvítur handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta.
Þvottahús er innan íbúðar. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur, skápur og hillur.
Geymsla er sér og á góðum stað í sameign á 1. hæð.

Hjóla- og vagnageymsla er innandyra í sameign á 1. hæð. Einnig í hluta bílageymslu.
Bílageymsla er með sérmerktum stæðum, alls 19 stæðum. Hún er mjög snyrtileg og er hluti hennar afgirtur fyrir hjól og vagna. Ekið er inn í bílageymslu frá Dyngjugötu. Bílastæði eru ofan á þaki bílageymslu og er ekið að þeim um Brekkugötu. Úti á lóð eru 31 bílastæði.

Garður er gróinn. Falleg hönnun með steinhleðslum, beðum fyrir fjölærar plöntur, grassvæði og hellulagðar stéttar. Sorpgeymsla er staðsett úti við inngang í bílageymslu. Svalir íbúðar eru með rafmagnstenglum og handrið eru með glervegg. Húsið er byggt úr steinsteypu og er einangrað að utan. Brekkugata 3 er með 11 íbúðum, áfast Brekkugötu 1 með 14 íbúðum. Hleðslustöðvar á lóð.

Allar uppýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. sep. 2024
95.650.000 kr.
97.900.000 kr.
10207 m²
9.591 kr.
21. des. 2020
63.800.000 kr.
66.000.000 kr.
140.5 m²
469.751 kr.
6. mar. 2020
27.250.000 kr.
317.200.000 kr.
617.9 m²
513.352 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone