Opið hús: Hrísholt 24, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Snyrtilegt 4-5 herbergja einbýli með stórum bílskúr. Húsið sem er steinsteypt er í heildina 184,9 fm og þar af er bílskúr 52,3 fm. Góð staðsetning í grónu hverfi innst í botnlangagötu þar sem stutt er í alla þjónustu. Að innan skiptist húsið í forstofu, hol, 3-4 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, búr, baðherbergi og þvottahús. Lokað forhitakerfi er í húsinu. Bílskúrinn er mjög rúmgóður með góðri lofthæð og með afstúkaðri geymslu/vinnuherbergi með glugga og gönguhurð út í garð.
Húsið þarfnast viðhalds.
Gólfhalli er í forstofu og holi.
Frábært tækifæri fyrir laghenta að gera húsið upp að eigin stíl.
Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur [email protected] eða Lilja aðstoðam. í síma 820-6511, tölvupóstur [email protected]
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með dúk á gólfi og fatahengi. Á hægri hönd er forstofuherbergi og á vinstri hönd er gestasalerni.
Gestasnyrting: á vinstri hönd úr forstofu með dúk á gólfi og glugga.
Hol/miðrými: með físum á gólfi.
Stofa/borðstofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Útgegnt út á pall og í garð sem snýr í suð-vestur.
Eldhús: Upprunaleg U-laga innrétting, góður borðkrókur, tveir gluggar í eldhúsi og flísar á gólfi og á milli innréttinga.
Búr: Með hillum við hliðina á eldhúsi, dúk á gólfi og glugga.
Þvottahús: Mjög rúmgott með flísum á gólfi, efri hillum, borðplötu með vaski, útgengt út á suð-austur hlið hússins við bílskúrinn.
Hjónaherbergi: Dúkur á gólfi með skápum.
Forstofuherbergi: Dúkur á gólfi og tvöfaldur skápur.
Svefnherbergi 3 og 4#: Búið að sameina þessi herbergi, nýlegt harðparket á gólfi og tvöfaldur skápur. Lítið mál að breyta til baka.
Baðherbergi: Baðinnrétting með vaski, spegill og ljós fyrir ofan, nuddbaðkar með sturtu. Dökkar flísar á gólfi og ljósar á veggjum.
Bílskúr: Stór og snyrtilegur bílskúr með góðri lofthæð, gönguhurð og nýlegri flekahurð með sjálfvirkum opnara. Bílskúrinn er einangraður og múraður en á eftir að klæða loftið. Upphitaður með afrennsli af húsinu. Góð afstúkuð geymsla/vinnuherbergi í bílskúrnum og gönguhurð út í garð.
Garður: Stór og snyrtilegur garður, hellur frá húsi að bílskúr og malarbílaplan fyrir framan bílskúrinn. Framan við húsið er steypt stétt að húsinu og lítill pallur fyrir aftan hús.
Bjart og vel skipulagt einbýlishús með miklum möguleikum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...