Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
hæð

Byggðavegur 93

600 Akureyri

45.900.000 kr.

584.713 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145114

Fasteignamat

41.450.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
78,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Byggðavegur 93 - Góð 3 herbergja 78,5 fm íbúð á jarðhæð í tvíbýli á vinsælum stað á Brekkunni
Eignin skiptist í sameiginlega forstofu og þvottahús, anddyri, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.


Gengið er inn um sameiginlegan inngang á norður hlið hússins. Þar er dúkur á gólfi.
Anddyri og gangur eru með plast parketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með gluggum til tveggja átta. Í stofunni er plastparket á gólfi. 
Eldhús er með flísum á gólfi og nokkuð rúmgóðri innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með plast parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er ljós innrétting með handlaug, salerni og hornbaðkar með sturtutækjum.
Geymsla er innan íbúðar. Þar er dúkur á gólfi og hillur. 
Úr sameiginlegu forstofunni fyrir framan íbúðina, er gengið inn í sameiginlegt þvottahús með íbúð efri hæðar.

- Nýtt þakjárn og ný einangrun í þaki árið 2009
- Frárennsli hefur verið endurnýjaðar að hluta 
- Rafmagnstafla er nýleg
- Timbur verönd er fyrir framan inngang á norðurhlið hússins
- Frábær staðsetning stutt frá grunn- og framhaldsskólum 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jan. 2022
21.950.000 kr.
24.500.000 kr.
78.5 m²
312.102 kr.
28. jún. 2013
11.150.000 kr.
14.454.000 kr.
78.5 m²
184.127 kr.
5. maí. 2006
8.460.000 kr.
9.900.000 kr.
78.5 m²
126.115 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone