Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2006
161,2 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 8. október 2026
kl. 12:00
til 12:30
Opið hús: Kólguvað 7, 110 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 8. október 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna fallega og bjarta fjögurra herbergja efri sérhæð með bílskúr við Kólguvað 7 í Norðlingaholti. Stórar hellulagðar svalir eru yfir bílskúrnum. Húsið er einkar vel staðsett í hverfinu og stutt er í skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði. Góð hellulögð bílastæði fylgja eigninni og hiti er í bílaplani og tröppum.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 161,2 m², þar af er flatarmál íbúðarrýmis 135,7 m² og bílskúrs 25,5 m². Fasteignamat 2027 verður 117.150.000 kr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með góðum skápum og flísalögðu gólfi.
Úr forstofu er komið inn í íbúðina miðja. Á vinstri hönd er herbergisgangur og á hægri hönd tekur við bjart og opið alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsholi og eldhúsi.
Eldhús er með fallegri innréttingu, granítborðplötum og eyju með granítborðplötu. Útgengt er úr eldhúsi á stórar hellulagðar svalir yfir bílskúr.
Stofa og borðstofa mynda opið og bjart rými. Granít er á sólbekkjum.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og hvítum fataskápum á heilum vegg.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og annað þeirra með hvítum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri sprautulakkaðri innréttingu, granítborðplötu, baðkari og rúmgóðri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni er á baðherbergi.
Þvottahús er með flísum á gólfi og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er flísalagður og inn af honum er góð geymsla.
Vandað plankaparket úr gráolíuborinni reyktri eik er á íbúðinni.
Árið 2026 fóru fram umfangsmiklar framkvæmdir á þaki hússins. Þakið var endurnýjað að hluta, m.a. var eldri þakklæðning rifin, þakið byggt upp til að endurmóta halla, borðaklæðning endurnýjuð, lagður nýr þakpappi og unnið við þakkanta, öndunartúður og þakrennur.
Eignin er björt og vel skipulögð á góðum stað í Norðlingaholti. Stutt er í skóla og leikskóla og Heiðmörk, með fjölbreyttum útivistarmöguleikum, rétt við hendina.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali i sima 822 2123 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. apr. 2020
104.400.000 kr.
69.000.000 kr.
40201 m²
1.716 kr.
8. des. 2008
33.340.000 kr.
19.669.000 kr.
161.2 m²
122.016 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026