Lýsing
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Forstofa: Komið er inn í bjarta forstofu með parket á gólfi. Eldhús: Falleg og stílhrein eldhúsinnrétting með hvítum skápum, granít borðplötu og granít flísum milli skápa. Innaf eldhúsi er búr. Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa, með parket á gólfi , þaðan gengið út á svalir með útsýni til suðurs og vesturs Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með hornbaðkari og sturtuklefa, flísalagt í hólf og gólf. Hjónaherbergi: Gott skápapláss í hjónaherbergi, með parket á gólfi og útgengi á suður svalir, Herbergi: Rúmgott herbergi (sem áður voru tvö herbergi, auðvelt að færa í fyrra horf) með parket á gólfi. Þvottahús:þvottahús er með WC, hillum og skápum, og er flísalagt. Stigi: Gengið er upp teppalagðan hringstiga upp á efri hæð. Efri hæð: Fallegur og bjartur glerskáli er á efri hæð, með flísum á gólfi og útgengi á suður svalir með miklu útsýni. Geymsla: Sér geymsla íbúðar er við hliðina á útihurð á palli. Hjólageymsla: Á 2.hæð þar sem gengið er inn í stigaganginn er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg og björt eign með miklu útsýni á eftirsóttum stað í miðbæ Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða [email protected]