Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1920
91,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 26. maí 2026
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Grundarstígur 8, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og falleg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Þingholtunum.Íbúðin er öll hin glæsilegasta með mikilli lofthæð, fallegum gifslistum og rósettum í loftum.
***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***
Mikið endurnýjað hús. Húsið var sprunguviðgert og málað í maí 2026. Þak hefur verið yfirfarið og skipt um rennur. Búið er að skipta um helming af gluggum og á dagskrá að yfirfara þá sem eftir eru og skipta um eftir þörfum. Grafið var fyrir dreni á norður- og vesturhlið hússins 2015/2016. Lagnir voru myndaðar haustið 2017.
Íbúðin er líka mikið endurnýjuð að innan á smekklega máta. Eldhús var endurnýjað 2022. Glæsileg innrétt og vönduð tæki. Baðherbergið var endurnýjað 2022. Sama ár var parket endurnýjað og einnig allir ofnar.
Forstofa er rúmgóð með upprunalegum flísum. Þvottaaðstaða er í forstofu. Falleg tvöföld glerhurð skilur rýmið frá eldhúsi.
Eldhús/borðstofa er parketlögð með nýlegri innréttingu. Mjög gott vinnupláss. Steinn á borði. Vönduð heimilistæki frá AEG. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott rými með góðu plássi fyrir borðstofuborð.
Stofa er parketlögð og með stórum gluggum til suðurs og austurs. Parketlögð.
Svefnherbergisgangur er flísalagður en þar eru tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Svefnherbergi íbúðar eru bæði rúmgóð. Mikið skápapláss í hjónaherbergi. Parketlögð.
Baðherbergi er flísalagt með með eikarinnréttingu. Nýlega endurgert. Rúmgóð sturta.
Geymsla er í kjallara, 13,5 fm og með glugga.
Fallegur garður með timburverönd sem snýr í vestur, bak við húsið og er sameiginlegur.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968, tölvupóstur [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. ágú. 2020
46.100.000 kr.
51.000.000 kr.
91.6 m²
556.769 kr.
6. jan. 2010
20.650.000 kr.
28.404.000 kr.
94.2 m²
301.529 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026