Lýsing
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýlishúsi. Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,4 fm. Búið er að endurnýja og lagfæra húsið mikið að innan sem utan.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í forstofu, í alrými er stofa / borðstofu /eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem staðsett er á jarðhæð. Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með innbyggðum hvítum fataskáp, parket gólfi.
Eldhús: Í alrými með stofu / borðstofu. Ný hvít Ikea innrétting, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, bakaraofn, helluborð, háfur, plötur milli skápa, parket á gólfi. Eldhúsið var flutt inn í stofu og endurnýjað.
Stofa / borðstofa: Í alrými, útgengt er út á vestursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt herbergi, innfelldur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi. Í þessu rými var eldhúsið sem flutt var inn í stofu (alrými).
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með hillum.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Sambyggð 6 - 8 er byggð 1990. Í Sambyggð 6 eru átta íbúðir. Búið er að endurnýja húsið mikið að utan m.a. múrviðgerðir og málun á húsinu, skipt var um járn á þaki og rennur, endurnýja gluggar og gler.
Lóð: Sameiginleg gróin lóð, stétt að húsi og malbikuð bílastæði.
Staðsetning: Smellið hér.
Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni og húsinu:
Að innan:
* Færa og endurnýja eldhús s.s. innréttingu og eldhústæki.
* Nýr fataskápur í svefnherbergi og nýr fataskápur í forstofu.
* Nýjar innihurðir.
* Nýbúið er að sparsla og mála eignina að innan.
* Nýlegt parket/parketlistar á forstofu, stofu og svefnherbergjum.
Að utan:
* Múrviðgerðir og málun á húsinu 2023.
* Nýir gluggar og gler 2021.
* Skipt var um járn á þaki og rennur 2017.
GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - TILVALIN FYRSTU KAUP - ER VEL STAÐSETT, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected].
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.