Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
89,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 18. apríl 2026 kl. 13:15 til 13:45

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 3.herbergja stórglæsilega og bjarta 89,3 m2 endaíbúð með aukinni lofthæð á 2.hæð með rúmgóðum svölum til suð-vestur í lyftuhúsi við Álalind 18 á frábærum stað miðsvæðis í Lindunum í Kópavogi. Eignin er einstaklega vel skipulögð með stóru alrými. Eigninni fylgir mjög vel staðsett bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að leggja fyrir bílarafhleðslustöð. Geymsla innan íbúðar.

Nánari lýsing
Forstofa með flísum á gólfi frá Álfaborg og góðum fataskáp frá Voke  ásamt fatahengi.
Eldhúsið er opið inn í stofu með gluggum til suðurs og vesturs sem gefa mikla birtu í rýmið, falleg eldhúsinnrétting frá Voke með miklu skápaplássi og ljúflokunum á skúffum, AEG ofn í vinnuhæð, AEG ísskápur með frysti ásamt innbyggðri uppþvottavél frá AEG. Span helluborð frá AEG með viftu yfir, parket á gólfi, útgengt á svalir í suðvestur. 
Stofa, borðstofa með parketi á gólfi.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott, 13,1 m2, með góðum fataskáp frá Voke og fataherbergi/geymslu inn af, gluggi til vesturs.
Barnaherbergið er 9,1 m2 með fataskáp frá Voke og glugga í suður.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, walk-in  sturta, upphengt salerni og falleg innrétting með efri skápum með speglahurðum og neðri skápum með tveimur stórum skúffum. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi með innréttingu með rúmgóðum skápum þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Rúmgóður ræstiskápur.
Vel staðsett bílastæði í bílageymslu.

Húsgjöld íbúðar eru 29.065 kr á mánuði en þá er allur almennu rekstur innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, ræsting sameignar, rekstur lyftu sem og einnig húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.

Álalind 18-20 er 57 íbúða álklætt fjölbýlishús með lyftu, bílakjallara og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið er einkar vel staðsett með tilliti til allrar þjónustu sem og einnig aðkomu að stofnbrautum.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]



 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. feb. 2021
21.750.000 kr.
61.400.000 kr.
89.3 m²
687.570 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone