Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1987
92,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Tvennar svalir
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Mikið uppgerða þriggja herbergja íbúð með sér inngangi við Smárabarð 2 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 92,8 fm og skiptist í anddyri, þvottahús/geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og tvö svefnherbergi sem bæði eru með útgengi út á svalir. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: [email protected]
Nánari lýsing: Gengið er inn í eignina á fyrstu hæð en þar er flísalagt anddyri og flísalagt þvottahús/geymsla. Frá anddyri er gengið upp parketlagðan stiga á efri hæð eignarinnar. Baðherbergið er með baðkari/sturtu, upphengdu klósetti og hvítri innréttingu. Eldhúsið var nýlega tekið í gegn með nýrri innréttingu, borðplötu og raftækjum. Stofan/borðstofan er opin og rúmgóð með parketi á gólfi. Frá stofunni er gengið inn í lítið herbergi sem nýtist sem skrifstofa eða barnaherbergi en úr því herbergi er hægt að ganga út á svalir til norð-vesturs. Hitt svefnherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og útgengi út á svalir til suð-austurs. Sameiginlegt hleðslustæði er fyrir framan húsið.
Búið er að endurnýja íbúðina mikið og má meðal annrs nefna að skipt var um raflagnir að hluta, rofar og tengla, eldhúsinnrétting var endurnýjuð ásamt raftækjum í eldhúsi, parket á gólfi var endurnýjað á efri hæð eignarinnar ásamt stiga, skipt var um innihurðar og komið var fyrir snjall lýsinginu í hluta eignarinnar sem hægt er að stjórna úr síma. Forstofa og þvottahús var nýlega flísalagt.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. ágú. 2021
40.150.000 kr.
45.000.000 kr.
92.8 m²
484.914 kr.
6. jún. 2017
25.100.000 kr.
34.500.000 kr.
92.8 m²
371.767 kr.
24. mar. 2014
19.250.000 kr.
21.500.000 kr.
92.8 m²
231.681 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026