Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Engihjalli 25

200 Kópavogur

64.900.000 kr.

687.500 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2060177

Fasteignamat

59.900.000 kr.

Brunabótamat

53.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1981
svg
94,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Lyfta
Opið hús: 9. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Engihjalli 25, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 06. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Bjalla nr. 23.

Lýsing

Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi með tvennum svölum. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum. Skipt hefur verið um eldhúsinnréttingu, alla fataskápa og flísar og tæki á baðherbergi. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, stofu / borðstofu, eldhús og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hver er með tengi fyrir sína vél. Skv. HMS er eignin skráð 94,4 fm ásamt 5,2 fm sér geymslu í sameing hússins. 

ATH ! Unnið er að múrviðgerð og málun utanhúss. AÐ sögn seljanda hefur verið greitt fyrir þær framkvæmdir. 


Nánari lýsing :
Forstofa: Nýlegur tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Hol: Innaf forstofu er rúmgott hol sem tengir saman vistarverur íbúðarinnar. Parket á gólfi.
Eldhús: Ljós innrétting sem endurnýjuð var fyrir nokkrum árum ásamt tækjum af fyrri eigendum. Núverandi eigandi breytti uppröðun innréttingarinnar og bætti við skápum, endurnýjaði borðplötur ásamt vaski og blöndunartækjum. Sér hólf fyrir bæði ísskáp og frystiskáp, tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt með útgengi á vestursvalir. Glæsilegt útsýni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýlegum fjórföldum fataskáp. Útgengt á rúmgóðar svalir. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Nýlegur tvöfaldur fataskápur, parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, rúmgóð hvít innrétting með skúffum undir vaski og háskáp. Handklæðaofn, upphengt salerni. 
Þvottaherbergi: Við hlið íbúðar er sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum.
Geymsla: Sérgeymsla 5,2 fm á sameignargangi á jarðhæð.

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    22. júl. 2013
    52.150.000 kr.
    18.000.000 kr.
    10406 m²
    1.730 kr.
    17. okt. 2022
    38.700.000 kr.
    54.000.000 kr.
    94.4 m²
    572.034 kr.
    15. nóv. 2018
    28.650.000 kr.
    35.200.000 kr.
    89.2 m²
    394.619 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone