Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Vista
fjölbýlishús

Veghúsastígur 1

101 Reykjavík

67.900.000 kr.

1.197.531 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512545

Fasteignamat

56.800.000 kr.

Brunabótamat

40.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
56,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Veghúsastígur 1, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 24. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Starfsmenn fasteignasölunnar taka á móti ykkur.

Lýsing

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: góða 2ja herbergja risíbúð á 3 hæð hússins að Veghúsastíg 1, 101 Reykjavík.

> Íbúðin er mikið endurnýjuð á smekklegan hátt
> Björt íbúð með gluggum í 3 áttir
> Útsýni bæði til Esjunnar og út á sjó
> Gólfflötur er töluvert stærri en birt stærð eignarinnar segir til um
> Svalir
> Húsið stendur á ótrúlega rólegum stað, en er þó alveg í miðbænum
> Eignarlóð
> Frábær fyrstu kaup


Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur.
Eldhús og stofa í opnu rými.
Eldhús: með hvítri innréttingu með granít borðplötum ásamt eyju. Tengt fyrir uppþvottavél. 
Stofa: með aukinni lofthæð að hluta er björt með stóra glugga.
Svefnherbergi: snýr í norður og er með svalir. Góðir fataskápar.
Baðherbergi: upphengt klósett, hvítar innréttingar með handlaug & baðkar með handsturtu ásamt opnanlegum glugga. Flísar á gólfi og veggjum. Tengt fyrir þvottavél.
Fallegt parket er á allri íbúðinni utan baðherbergis.

Stigagangur er teppalagður með nýlegu teppi. Fatahengi á gangi framan við hurð. Eldvarnarhurð inn í íbúðina.

Sér geymsla í bakgarði.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eigendum:
Skólp og dren hefur verið endurnýjað. Búið að endurnýja t.d. innréttingar, gólfefni, raflagnir og ofnalagnir.

Lóðin er nýtt sameiginlega af íbúum hússins og er hellulögð. 
Lóðin er eignarlóð. 
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð merkt 02-03-01, birt stærð er 54,2 fm. Sér geymsla í bakgarði er skráð 2,5 fm. Heildarstærð er 56,7 fm. Brúttó gólfflötur er 70,8 fm. Svalir eru 3,8 fm. Húsið var byggt 1935 og er steypt hús. 4 íbúðir eru í húsinu; ein á hverri hæð.

Stutt í þjónustu, verslanir, veitingahús, Bíó Paradís og skóla. Tækniskólinn, MR og Sundhöllin í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur [email protected] 
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur [email protected]
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

img
Auður Sigr Kristinsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Bær
Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
img

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. apr. 2021
37.400.000 kr.
44.000.000 kr.
56.7 m²
776.014 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík