Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
309,3 m²
svg
9 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Glæsilegt 334,3 fm einbýli á þremur pöllum á frábærum útsýnisstað, með 6 svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr á Holtinu í Hafnarfirði.
Húsið skiptist í þrjá palla og er sérlega bjart og opið.

* Sólpallur og heitur pottur
* 6 svefnherbergi og 3-4 stofur
* Aukin lofthæð og frábært útsýni
* Golfklúbburinn Keilir í næstu götu


****EIGN SEM ER ÞESS VIRÐI AÐ SKOÐA****

Eignin skiptist í: Íbúðarhluta sem er 251,3 fm og 58,0 fm bílskúr,
samtals 309,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Til viðbótar eru ca 25
óskráðir fermetrar undir bílskúr sem búið er að gera herbergi í og opna inn í íbúðina á neðstu hæð. Mögulegt að útbúa litla íbúð með sérinngangi á jarðhæð.


Efsti pallur skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, 3 svefnherbergi og bílskúr:
Forstofa er flísalögð með fataskáp og gólfhita.
Eldhús hefur verið glæsilega endurnýjað. Sérsmíðuð innrétting frá HTH og borðplata úr Kvarts-steini, ný og vönduð eldhústæki frá AEG, Stór eldhúseyja með XL helluborði, Bakarofn og combi bakarofn/örbylgjuofn í vinnuhæð, pláss fyrir tvöfaldann ísskáp. Tengi fyrir uppþvottavél. Virkilega gott skápapláss.
Borðstofa er björt og opin með eldhúsi. Parket á gólfi og hiti í gólfi.
Baðherbergi er ný upp gert  2026, flísalagt með innréttingu, wc og sturtu.
Svefnherbergi 1 er inn af forstofu, rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Bílskúr er skráður 58,0 m2 og innangengur úr eldhúsi. Hann er upphitaður, þar er heitt og kalt vatn, tvær bílskúrshurðar, þar af önnur rafdrifin. Flísar á gólfi og ágætt geymsluloft.

Miðjupallur:
Stofa er rúmgóð með fallegum arin og miklu útsýni.
Parket á gólfi og niðurgengt í sólstofu með flísum á gólfi.
Úr sólstofu er útgengt út á rúmgóðan, skjólgóðan sólpall með heitum potti, grind var endurnýjuð 2020.

Neðsti pallur skiptist í sjónvarpshol, baðherbergi, 3 rúmgóð svefnherbergi og þvottahús:
Sjónvarpshol er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, stóru sérsmíðuðu baðkari, sér-sturtuklefa og upphengt wc. Hiti í gólfum og gert var ráð fyrir gufubaði þar inn af. (tengi eru til staðar)
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi, stórum fataskápum og gluggum á tvo vegu. Innangengt í baðherbergi og útgengt út á sólpall.
Svefnherbergi 5 er með parket á gólfi, fataskáp og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi 6 er mjög rúmgott með parket á gólfi, litlum opnanlegum glugga. Var áður nýtt sem geymsla en breytt 2017. Óskráð rými ca. 21 m2.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu, góðu skápaplássi og útgengt út á sólpall. 

Hellulagt bílaplan er fyrir framan hús með snjóbræðslu. Næg bílastæði. Meðfram húsi er göngustígur.

Afar barnvæn og vinsæl staðsetning í Hafnarfirði. Örstutt í leikskólana Vesturkot og Álfastein, Hvaleyrarskóla, Krónan og Bónus í göngufjarlægð sem og íþróttir, útivist og Suðurbæjarlaug svo fátt eitt sé nefnt. Mikið útsýni og golfklúbburinn Keilir í næstu götu.

Góðar upplýsingar um framkvæmdir á húsinu undanfarin ár liggja fyrir í handbók eiganda sem nálgast má hjá fasteignasala.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði. 

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is



 

img
Aron Freyr Eiríksson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Aron Freyr Eiríksson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. maí. 2017
63.300.000 kr.
75.000.000 kr.
309.3 m²
242.483 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Aron Freyr Eiríksson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði